fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Fréttir

Styðja hugmynd um rafíþróttir innan íþóttafélaga Reykjavíkur – Forvarnargildi og jákvæð áhrif á félagsfærni

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 2. apríl 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Formenn þriggja íþróttafélaga lýsa yfir stuðningi sínum við töllögu borgarstjórnar um stuðning við rafíþróttir. Tillagan lýtur að því að borgin muni styðja íþróttafélög við að koma á fót rafíþróttadeildum innan félaganna með það að markmiði að koma í veg fyrir félagslega einangrun og auka félagsfærni barna og ungmenna.

„Þátttaka barna og ungmenna í íþróttastarfi hefur mikið forvarnargildi og hefur mjög jákvæð áhrif á félagsfærni barna, ekki síst til framtíðar litið. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt fram á þessi jákvæðu tengsl. Það er nauðsynlegt að börn og ungmenni fái þjálfun í félagsfærni enda getur slík færni hjálpað þeim á öllum stigum lífsins, bæði í leik og starfi. 

Við undirritaður viljum styðja þessa tillögu og teljum að þetta geti bæði aukið fjölbreytni íþróttastarfs, en einnig leitt til að börn og ungmenni, sem ekki taka þátt í starfi íþróttafélaga sjái tækifæri til að sinna sínum hugðarefnum innan þeirra raða.“

Undir stuðningsyfirlýsinguna skrifa Björn Einarsson, formaður Víkings, Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður KR og Jón Karl Ólafsson, formaður Fjölnis.

Rafíþróttir er samheiti yfir skipulagða keppni í tölvuleikjum og eru oft iðkaðar þar sem margar tölvur eru settar upp í sama rými þar sem þátttakendur keppast um besta árangurinn.  Seint á síðasta ári voru stofnuð Rafíþróttasamtök Íslands sem ætla er að  halda með markvissum hætti utan um uppgang rafíþrótta hérlendis.

Tillagan var lögð fram af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins á borgarstjórnarfundi í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hraðbanka Íslandsbanka stolið í nótt

Hraðbanka Íslandsbanka stolið í nótt
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Heiðrún segir fólki að anda rólega: „Merkilegt að sjá hve mörgu hefur verið haldið fram í fjölmiðlum sem stenst ekki skoðun“

Heiðrún segir fólki að anda rólega: „Merkilegt að sjá hve mörgu hefur verið haldið fram í fjölmiðlum sem stenst ekki skoðun“
Fréttir
Í gær

Kennaraverkfall kom afar illa við fatlaða stúlku – Stuðningsfulltrúa sem var ekki í verkfalli meinað að sinna henni

Kennaraverkfall kom afar illa við fatlaða stúlku – Stuðningsfulltrúa sem var ekki í verkfalli meinað að sinna henni
Fréttir
Í gær

Segir Carbfix hafa hefnt sín á Heimildinni fyrir gagnrýna umfjöllun

Segir Carbfix hafa hefnt sín á Heimildinni fyrir gagnrýna umfjöllun