fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
Fréttir

Fermingarkostnaður hleypur á hundruðum þúsunda

Auður Ösp
Sunnudaginn 31. mars 2019 13:00

Það er ekki ókeypis að ferma börn.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin árlega fermingarvertíð nálgast óðfluga og að ýmsu er að huga þegar kemur að undirbúningnum. Um er að ræða mikilvæg tímamót í lífi fermingarbarnsins og fjölskyldunnar, en það getur kostað sitt að leiða barnið í fullorðinna manna tölu. Þannig getur kostnaður vegna fermingarhalds auðveldlega farið upp í hálfa milljón króna samkvæmt lauslegri úttekt DV.

Fermingarfræðslan

Gjald vegna fermingar hjá Þjóðkirkjunni er um 20.000 krónur. Inni í því er kostnaður vegna fermingarfræðslu og gjald fyrir leigu á fermingarkyrtli. Þá bætist í sumum tilvikum við gjald vegna bóka og vegna ferðalaga sem tengjast fermingarfræðslunni.

Veisluhald

Hægt er að spara umtalsverðar fjárhæðir með því að halda fermingarveisluna í heimahúsi, en það er þó ekki á allra færi. Samkvæmt lauslegri könnun DV er nær ómögulegt að finna sal til leigu á höfuðborgarsvæðinu undir 40 þúsund krónum og á sumum stöðum getur leigan farið upp í 200 þúsund krónur. Þá er mismunandi hvort þjónusta starfsmanna sé innifalinn. Algengt er að greiða þurfi sérstaklega fyrir þjónustu eins eða tveggja starfsmanna. Algengt tímagjald er þá á bilinu 3.500 til 4.500 krónur.

Kostnaður tengdur boðskortum fer eftir fjölda gesta en sé miðað við 80 gesti þá má gera ráð fyrir rúmlega 10 þúsund krónum sem fela þá í sér prentun á kortum, umslög og frímerki.

Veitingar

Veitingar eru líklega stærsti kostnaðarliðurinn við fermingarhaldið en kostnaðurinn getur þó verið afar misjafn. Til að mynda geta kökuboð verið ódýrari kostur en heitir réttir og þá er hægt að spara umtalsverðar fjárhæðir með því að útbúa veitingar heima. Í þessu tilviki er miðað við að allar veitingar séu keyptar utan úr bæ.

Flestir telja fermingartertuna ómissandi á veisluborðið. Verð á slíkri tertu fer að sjálfsögðu eftir stærð, en er sjaldnast undir 20 þúsund krónum. Hér er miðað við að nóg sé til af tertu fyrir 80 gesti.

Margvíslegur kostnaður

Langoftast er splæst í ný föt fyrir fermingarbarnið og er algengt að kostnaður sé á bilinu 10 til 20 þúsund krónur. Hægt er að spara talsvert með því að kaupa erlendis eða hjá netverslunum.

Þá er ótalinn annar kostnaður tengdur útliti fermingarbarnsins. Til að mynda er algengt að fermingarstúlkur fari í brúnkusprautun og förðun fyrir stóra daginn og margir kjósa fara í húðhreinsun á snyrtistofu til að líta sem allra best út. Þá er fermingarhárgreiðslan mikilvæg í augum flestra fermingarstúlkna.

Að lokum ber að nefna margvíslegan kostnað tengdan fermingunni og veislunni. Skreytingar á veisluborð, servíettur og kerti, að ógleymdri gestabókinni.

Fermingarhald

Viðmiðunarkostnaður


Rétt er að taka fram að listinn hér er langt í frá tæmandi og er aðeins til viðmiðunar. Forsendur útreikninga eru hóflega áætlaðar og ljóst er að hægt er að áætla bæði meiri og minni kostnað við ýmsa af útgjaldaliðunum.

Fermingarfræðsla (Langholtskirkja)

Fræðslugjald : 19.146 kr.

Kostnaður vegna ferðalags: 15.000 kr.

Leiga á fermingarkyrtli: 2.000 kr.

Boðskort í veislu, 50 stk: 8.750 kr. (Mynd.is)

Fermingarveisla

Leiga á sal: 60.000 kr.

Þjónusta tveggja starfsmanna í þrjár klst: 20.700 kr.

Veitingar (súpa, brauð og smáréttir) fyrir 80 manns: 230.000 kr. (Veislulist)

Fermingarterta fyrir 60 manns: 54.000 kr. (Myllan)

Fermingarterta fyrir 20 manns: 13.600 kr. (Myllan)

Annað:

Myndataka: 29.000 kr. (Stúdíó Dís)

Sálmabók: 2.680 kr. (Garðheimar)

Föt og skór á fermingarbarn: 16.000 kr. (Gallerí 17)

Hárgreiðsla fyrir fermingarstúlku (prufugreiðsla innifalin): 24.500 kr. (Kompaníið)

Fermingarkerti með áletrun: 3.990 kr. (Blómaval)

Servíettur, áletraðar: 3.500 kr. (Blómaval)

Gestabók: 4.260 kr. (Múlalundur)

Meðalverð:

507.126 kr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Hraðbanka Íslandsbanka stolið í nótt

Hraðbanka Íslandsbanka stolið í nótt
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Heiðrún segir fólki að anda rólega: „Merkilegt að sjá hve mörgu hefur verið haldið fram í fjölmiðlum sem stenst ekki skoðun“

Heiðrún segir fólki að anda rólega: „Merkilegt að sjá hve mörgu hefur verið haldið fram í fjölmiðlum sem stenst ekki skoðun“
Fréttir
Í gær

Kennaraverkfall kom afar illa við fatlaða stúlku – Stuðningsfulltrúa sem var ekki í verkfalli meinað að sinna henni

Kennaraverkfall kom afar illa við fatlaða stúlku – Stuðningsfulltrúa sem var ekki í verkfalli meinað að sinna henni
Fréttir
Í gær

Segir Carbfix hafa hefnt sín á Heimildinni fyrir gagnrýna umfjöllun

Segir Carbfix hafa hefnt sín á Heimildinni fyrir gagnrýna umfjöllun