Kona ein úr Breiðholtinu segir að lítið þýði að koma fram með réttmæta gagnrýni á verslunina Costco vegna þess að viðskiptavinir hennar sem eru í FB-hópnum Costco gleði þoli ekki gagnrýni á hana og sjái ekkert gagnrýnisvert. Hún skrifar á FB-síðu sína:
„Að koma með réttmæta gagnrýni inn í gleði hópinn í kringum Costco og benda fólki á að það sé verið að svindla á því á hverjum degi er eins og að reyna að díla við eitthvað cult dæmi Þetta er actually fólkið sem fer á fætur, horfir í spegil og segir Costco yfirráð eða dauði.
Galnasta samkoma landsins…
Og já ég er á grillinu akkúrat núna“
Gagnrýnin sem konan kom með á Costco felst í því að tímarit sem hún keypti í versluninni voru ekki rétt verðmerkt. Verðið sem slegið var inn á kassa var mun hærra en verðið sem tímaritin voru merkt með. Hún skrifar um þetta í FB-hópinn Costco gleði:
„Aðeins að kasta skugga á gleðigönguna hérna og vara fólk við verðmerkingum annars vegar og svo því sem maður þarf svo að greiða á kassa. Fór undir kvöld og verslaði allskonar og meðal annars 3 tímarit. Tók sérstaklega eftir verði í hillu en ekkert þessara tímarita kostaði meira en 630-680kr. Fór á kassa, hitti einhvern og fylgdist ekki sérstaklega með þegar vörurnar voru skannaðar inn. Borgaði og hentist heim og skoðaði svo strimilinn áðan. Costco hafði af mér í þessari ferð sennilega einhvern 400 kall (sem ég veit um) sem í sjálfu sér er ekki stór upphæð. En það er algjörlega óþolandi að verslunin geti stolið af manni einhverjum 100 köllum í hverri ferð og að engin sé búin að stoppa þetta rugl eða það megi ekki tala um það því að þetta á allt að vera svo skemmtilegt og gaman…“
Það er reyndar svo að konan er ekki tekin harkalega fyrir vegna þessarar gagnrýni hennar eins og hún gefur í skyn en fæstir taka þó undir með henni. Margir segja að það sé á ábyrgð viðskiptavina að skoða vel kassakvittanir en hún segir að það sé á ábyrgð verslunarinnar að veita réttar upplýsingar um verð. Ein kona skrifar: „Hef aldrei lent í þessu þegar ég versla í Costco, fylgist líka alltaf með á skjánum þegar er skannað inn og reyndar í öðrum verslunum líka.“ Önnur kona segist aðeins í eitt einasta skipti hafa þurft að gera athugasemd við innslegið verð. Aðrir benda málshefjanda á að svona gerist í öllum verslunum.