Óviðunandi bið er eftir greiningum á ADHD á Íslandi, alvarlegur skortur er á geðlæknum og ADHD-samtökin hafa miklar áhyggjur af stöðunni. Á þriðja hundrað börn bíða eftir greiningu á þroska- og hegðunarstöð og allt að tveggja ára bið er fyrir fullorðna hjá ADHD teymi LSH. Þetta kemur fram í ályktun ADHD-samtakanna frá aðalfundi þeirra í gær. Þar kemur jafnframt fram að áætlað er að 15-20 þúsund einstaklinga á Íslandi séu með ADHD.
„Alvarlegur skortur er á geðlæknum og ekki síst erfitt fyrir fullorðna að leita sér greiningar og í framhaldi meðferðar. Greining og eftirlit geðlæknis er í dag forsenda lyfjameðferðar vegna ADHD og önnur úrræði, niðurgreidd af stjórnvöldum eru því miður afar fá.“
Fullorðinn einstaklingur sem býður eftir greiningu ADHD-teymis LSH gæti þurft að bíða í upp undir tvö ár eftir greiningu, en þetta telja ADHD-samtökin vera ófremdarástand og stórefla þurfi þjónustu ADHD teymisins. Aðgengi fólks með ADHD að geðheilbrigðisþjónustu sé slæmt.
Um 250 börn bíða eftir greiningu á Þroska- og hegðunarstöð og meðalbiðtími þar er um eitt ár.
„ADHD samtökin hafa miklar áhyggjur af þessari alvarlegu stöðu því ljóst er að hver mánuður í lífi fólks með ógreint og ómeðhöndlað ADHD er einum mánuði of mikið og vandinn eykst ef ekkert er að gert, ekki síst í lífi barns á viðkvæmu mótunarskeiði. Biðlistum eftir greiningu á ADHD þarf að eyða, bæði hjá ADHD teymi LSH og Þroska- og hegðunarstöð án tafar.“
Samtökin segja að veita þurfi meira fjármagn til Þorska- og hegðunarstöðvarinnar til að eyða biðlistum og svo hægt sé að veita þjónustu til þeirra sem hennar leita innan þriggja mánaða eftir að beiðni berst. Sálfræðiþjónustu þurfi að veita á sömu forsendum og heilbrigðisþjónustu og mikilvægt að fella sálfræðiþjónustu undur greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga eins fljótt og auðið er. Sálfræðiþjónusta geti dregið úr þörf fyrir dýrari úrræði og með því að veita einstaklingum greiningu og þjónustu fyrr þá geti kostnaður samfélagsins minnkað og lífsgæði þeirra sem eru með ADHD stóraukist.
Einnig telja samtökin mikilvægt að veita almenna fræðslu um ADHD í menntastofnunum landsins, einkum í grunnnámi kennara. Með réttum kennsluaðferðum og skilningi sé hægt að bæta líðan barna með ADHD í skóla og frístundum.
„Betri lífsskilyrði fyrir fólk með ADHD mun bæta lífsgæði allra – ekki bara þeirra einstaklinga sem glíma við ADHD á Íslandi, heldur einnig fjölskyldna þeirra, nærsamfélags og samfélagsins alls. Greining og aðgengileg úrræði vegna ADHD er einhver besta samfélagslega fjárfesting sem heilbrigðis- og skólakerfið geta ráðist í á komandi árum.“