fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
Fréttir

Gæti orðið illfært á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði í kvöld

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 20. mars 2019 13:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vegagerðin vekur athygli á því að veður mun versna umtalsvert síðdegis á norðvestanverðu landinu. Vindröst með suðvestan stormi gengur á land og má búast við því að vindur fari í 20 til 25 metra á sekúndu á fjallvegum Vestfjarða og á Þverárfjalli.

Þá verður veður að líkindum vont á Holtavörðuheiði og á Öxnadalsheiði; mjög blint gæti orðið og mikið kóf og þá mun snjór að líkindum vera fljótur að setjast í skafla. Það lægir seint í nótt.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir færð á landinu:

Yfirlit: Vetrarfærð og éljagangur víðast hvar á vestan- og norðanverðu landinu og frekar hvasst. Austan- og norðaustanlands er víða greiðfært.

Höfuðborgarsvæðið: Greiðfært er á öllum leiðum.

Suðvesturland: Hálka eða hálkublettir ásamt éljagangi víðast hvar á fjallvegum en greiðfært er orðið nokkuð víða á láglendi.

Vesturland: Víða hálkublettir eða hálka og éljagangur. Snjóþekja á Holtavörðuheiði, Heydal og Laxárdalsheiði. Mælt er frekar með Laxárdalsheiði og Bröttubrekku heldur en Holtavörðuheiði vegna skyggnis.

Vestfirðir: Snjóþekja eða hálka víðast hvar og víða éljagangur eða skafrenningur. Þungfært og skafrenningur er norður í Árneshrepp.

Norðurland: Hálka víða í Húnavatnssýslum en hálkublettir og éljagangur í Skagafirði og í Eyjafirði.

Vaðlaheiðargöng: Vegna vinnu í Vaðlaheiðargöngum er næturlokun fyrir almenna umferð þessa viku, milli kl. 22 og 06 fram á fimmtudag 21. mars.

Norðausturland: Vegir eru víðast hvar greiðfærir en hálkublettir eru á Fljótsheiði sem og á Möðrudalsöræfum vestan Vopnafjarðarafleggjara.

Austurland: Hálka er á Vatnsskarði eystra en annars eru vegir mikið til auðir.

Suðausturland: Hálkublettir eru frá Eldhrauni og austur í Öræfasveit en greiðfært er frá Kvískerjum að Höfn. Snjóþekja og snjókoma er á Mýrdalssandi.

Suðurland: Hálka eða hálkublettir eru víða í uppsveitum en hálkublettir víða á þjóðvegi 1. Hálka er á Reynisfjalli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega

Pris fagnar ársafmæli – Segja fjölskyldur spara tugi eða hundruði þúsunda árlega
Fréttir
Í gær

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni

Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot gegn barni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur krefst formlega skýringa á bensínverði – „Neytendur eiga rétt á skýrum svörum“

Vilhjálmur krefst formlega skýringa á bensínverði – „Neytendur eiga rétt á skýrum svörum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Undrast glansmyndir af fasteignasölum – „Þær virðast vera að auglýsa krullujárn og þeir brosa bara fallega“

Undrast glansmyndir af fasteignasölum – „Þær virðast vera að auglýsa krullujárn og þeir brosa bara fallega“