fbpx
Sunnudagur 10.ágúst 2025
Fréttir

Guðmundur: Hitti útlending sem var ekki hrifinn af Íslandi – „Tvennt tók hann fram. Hið fyrra kom ekki á óvart“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 11. mars 2019 09:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Af vitnisburði mannsins mátti greina að hann var ekki alltof hrifinn af landi og þjóð,“ segir Guðmundur Steingrímsson, heimspekingur og fyrrverandi þingmaður, sem að undanförnu hefur verið á faraldsfæti um Mið- og Suður-Ameríku ásamt fjölskyldu sinni.

Guðmundur segir frá upplifun manns af landi og þjóð sem hafði heimsótt Ísland í sínum vikulega pistli í Fréttablaðinu í dag. Þeir ræddu saman yfir kvöldmat í bændagistingu í Kólumbíu fyrir skemmstu. „Fólk rakti ferðir sínar. Kom þá ekki á daginn — sem gladdi auðvitað hjarta eyjarskeggjans — að maðurinn hafði komið til Íslands. Í sex klukkutíma. Hann millilenti á leið sinni annað, og ákvað að bregða sér í Bláa lónið.“

Sem fyrr segir mátti greina að maðurinn var ekki alltof hrifinn af landi og þjóð.

Verðlagið er eitt

„Tvennt tók hann fram. Hið fyrra kom ekki á óvart. Hann nánast stóð upp og fórnaði höndum yfir verðlaginu. Það kostaði 85 dollara að taka leigubíl frá flugvellinum að Bláa lóninu, sagði hann. Svona verði á leigubíl hafði hann aldrei kynnst.“

Guðmundur segir að sem Íslendingur sé hann alvanur gagnrýni útlendinga á verðlagið. „Maður er orðinn góður í því að setja upp viðeigandi svipi til viðurkenningar á þessum raunveruleika. Ísland er dýrt. Hitt gagnrýnisatriði mannsins kom okkur hjónum hins vegar í opna skjöldu. Þetta höfðum við ekki heyrt fyrr, að minnsta kosti ekki á þennan hátt,“ segir Guðmundur sem varpar svo ljósi á það sem maðurinn sagði:

„Maðurinn vildi meina að Íslendingar væru allir eins. „Þeir líta allir eins út,“ sagði hann.

Við urðum smá hvumsa. Það var augljóst að maðurinn leitaði að orði í huganum til að lýsa betur því sem hann átti við. „Það er eins og Íslendingar sé allir svona … þið vitið … hvað er aftur orðið … ?“

„Einræktaðir?“ sagði þá konan mín varfærnislega.

„Já, einmitt!“ hljóðaði maðurinn og tuggði. „Einræktaðir.““

Er eitthvað til í þessu?

Guðmundur segir að hann og maðurinn hafi ekki talað mikið meira saman eftir þetta, en Guðmundur tekur þó fram að hann sé ekki sammála manninum – að minnsta kosti ekki hvað varðar útlit okkar Íslendinga.

„Mér finnst Íslendingar ekki líta allir eins út. Þótt það sé kannski ekki rosalegur munur á til dæmis Steingrími J. Sigfússyni og Ómari Ragnarssyni, þá sé ég greinilegan mun á til dæmis Katrínu Jakobsdóttur og Ásdísi Rán. Kannski var maðurinn í Bláa lóninu með bara Ármanni og Sverri. Þeir líta auðvitað eins út vegna þess að þeir eru tvíburar. Kannski var þetta furðulegur dagur í Bláa lóninu. Kannski voru keppendur um rauðasta hárið á írsku dögunum á Akranesi allir komnir í lónið. Maður veit ekki. Reyndar tók maðurinn fram að hann ætti ekki við fólkið í lóninu, enda eru þar vitaskuld á hverjum venjulegum degi fulltrúar hinna ýmsu þjóðerna. Hann átti við íslenska starfsfólkið og þá sem hann var nokkuð viss um að væru Íslendingar.“

Guðmundur segir að manninum hafi fundist þetta og erfitt sé að rökræða um þessa bjargföstu skoðun hans á landi og þjóð. „„Við erum ekki eins,“ hefði ég sagt. „Jú, víst,“ hefði hann sagt. Engum greiði gerður.“

Guðmundur segir að á þeim tveimur vikum sem liðin eru frá þessu samtali hafi hann velt fyrir sér hvað maðurinn átti við. Hvernig maðurinn geti sagt að Íslendingar séu allir eins.

„Að sjálfsögðu er ekki hægt að taka þetta bókstaflega. Hitt blasir þó við: Því er ekki að neita að maður þarf ekki að fara langt út fyrir landsteinana til þess að fá einhverja hugmynd um það hvernig manninum hefur mögulega liðið á Íslandi. Tökum London. Á götum London er margfalt meiri fjölbreytni í mannlífi heldur en nokkurn tímann sést á Íslandi. Maður finnur þetta strax. Fólk er miklu meira alls konar. Ekki bara vegna þess að það á sér ólíkan uppruna heldur líka vegna þess að fjölbreytnin í viðfangsefnum fólks, tísku þess, lífsstíl þess og viðhorfum er svo miklu, miklu meiri.“

Einsleitni á Íslandi

Guðmundur segist í raun skilja manninn betur, eftir því sem frá líður.

„Ég sé sannleikskorn. Þegar ég hugsa til Íslands úr fjarlægð og ber saman við lífið sem blasir við í borgum heimsins, kemur einsleitni upp í hugann. Í samanburði við aðrar þjóðir einkennist Ísland af fábreytni. Það vantar fleiri íbúa,“ segir Guðmundur sem kemur sér svo að ástæðu þess að hann skrifaði greinina.

„Enn og aftur berast fregnir af því að íslensk yfirvöld séu ákaflega upptekin af því að vísa flóttafólki úr landi. Jafnvel á að setja lög sem gera yfirvöldum þetta auðveldara. Ég spyr: Af hverju? Hvert er markmiðið? Hver er váin?“

Guðmundur kveðst velta fyrir sér hvort ekki þurfi að taka vissa grundvallarumræðu áður en lengra er haldið. Spyr hann hvort það sé vilji fólks að samfélagið sé einsleitt eða hvort það sé vilji fólks að samfélagið sé opnara og fjölbreyttara. Sjálfur er Guðmundur þeirrar skoðunar að hið síðara sé eftirsóknarverðara.

„Fjölbreytt mannlíf felur í sér aukin lífsgæði. Lögin ættu að stuðla að slíku samfélagi, en ekki hinu. Eftir samræðuna við arabann í Kólumbíu hef ég sannfærst enn frekar um það að hin harðneskjulega, þvermóðskufulla og ómanneskjulega barátta íslenskra yfirvalda gegn fjölbreytni og til varnar einsleitni sé fáránleg.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum
Fréttir
Í gær

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns

Sérfræðingur veltir fyrir sér hvort þetta sé arftaki Pútíns
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Múslimum bannað að halda trúarhátíðir á opinberum stöðum

Múslimum bannað að halda trúarhátíðir á opinberum stöðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Heimilt verði að hafa hættulega menn áfram í haldi eftir að afplánun lýkur

Heimilt verði að hafa hættulega menn áfram í haldi eftir að afplánun lýkur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi