Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar jókst um ríflega sjö prósent sem er mikil aukning í febrúar og mun meiri aukning en að jafnaði í þessum mánuði. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagarðarinnar. Þar segir að hluti skýringar á mikilli aukningu gæti verið að fyrir ári var mjög lítil aukning í umferðinni í febrúar. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 4,3 prósent á höfðuborgarsvæðinu.
„Umferðin hefur aldrei verið meiri yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, en hún jókst um 7,1% milli febrúaramánaða 2018 og 2019. Þetta er mun meiri aukning en varð í sama mánuði fyrir ári síðan og leita þarf aftur til ársins 2016 til að finna sambærilega aukningu í febrúarmánuði,“ segir í fréttinni. Þá segir að umferðin hafi aukist langmest yfir mælisnið á Reykjanesbraut, 7,2%, og á Vesturlandsvegi, 9,8%.
Er þessi mikla aukning sögð geta að einhverju leyti skýrst af lítilli aukningu í febrúar á síðasta ári.
„Nú hefur umferðin aukist að jafnaði um 2,8% í febrúar frá árinu 2005. Þessi aukning nú er því 2,5 sinnum meiri en í meðalári. Nú hefur umferðin aukist um 4,3%, frá áramótum og er það einu prósentustigi meiri aukning en á sama tíma á síðasta ári.“
Þá segir að umferðin hafi verið mest á föstudögum í febrúar nýliðnum og minnst á sunnudögum. „Umferðin jókst hins vegar hlutfallslega mest á sunnudögum, eða um tæp 18%, en minnst á þriðjudögum, eða um rúmlega 2%, sem jafnframt voru umferðarminnstir virkra daga í nýliðnum mánuði.“