fbpx
Sunnudagur 22.júní 2025
Fréttir

Jón Viðar ósáttur og vill afsökunarbeiðni: „Afar ósmekklegt og ómaklegt“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 5. mars 2019 10:09

Jón Viðar Jónsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Viðar Jónsson, helsti leikhúsgagnrýnandi þjóðarinnar til fjölda ára, gagnrýnir Bergsteinn Sigurðsson, menningarritstjóri Ríkissjónvarpsins, fyrir að nefna það að leikarinn að Atli Rafn Sigurðsson hafi verið rekinn úr Borgarleikhúsinu.

Jón Viðar telur Bergsteinn ætti að biðjast afsökunar. „Ég heyri að Bergsteinn Sigurðsson getur ekki rætt um nýja sýningu Þjóðleikhússins án þess að hnýta við athugasemd um „umdeild“ starfslok Atla Rafns í öðru leikhúsi. Afar ósmekklegt og ómaklegt hjá sjónvarpsmanninum. Hann ætti að biðjast afsökunar,“ segir Jón Viðar á Facebook.

Sjá einnig: Atli Rafn rekinn viku fyrir frumsýningu: Sakaður um kynferðislega áreitni – „Við bara viljum ekki tala við ykkur“

Bergsteinn svarar Jóni Viðari og segir það nánast óumdeilt að uppsögn Atla Rafns hafi verið umdeild. „Starfslok Atla í Borgarleikhúsinu voru umdeild, svo umdeild að hann hefur höfðað dómsmál til að sækja bætur vegna þeirra. Það mál var mikið í fréttum á sínum tíma og endurkoma hans á leiksvið í sjálfu sér fréttnæm. Ég sé því nákvæmlega ekkert athugavert við að nefna það í þættinum, það fól ekki í sér nokkurn gildisdóm um Atla eða afstöðu til máls hans og ég sé enga ástæðu til að biðjast afsökunar á því,“ segir Bergsteinn.

Líkt og DV greindi frá í desember árið 2017 var Atli Rafn sakaður um kynferðislega áreitni og því rekinn. Samkvæmt heimildum DV þá tengdist brottreksturinn nafnlausum ásökunum þar sem Atli hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni, en þær voru settar fram í lokuðum hópi á Facebook. Á dögunum var greint frá því að Atli Rafn vill fá 13 milljónir í skaða- og miskabætur frá Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra Borgarleikhússins og Leikfélagi Reykjavíkur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Borgin setur fram kröfur í málinu en ætlar ekki að fylgja þeim eftir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“

Íslendingur verulega ósáttur við ferðamenn – „Ég er búinn að fá upp í kok“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag

Húsleitir víða í gær og farið fram á gæsluvarðhald í dag