Lögreglan á Suðurnesjum vinnur nú að rannsókn á máli sem upp kom fyrr í mánuðinum þegar karlmaður á fimmtugsaldri var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með 900 millilítra af amfetamínvöka í farangrinum.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér í morgun.
Þar segir að tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafi stöðvað för mannsins við komu hans til landsins frá Póllandi. Amfetamínvökvinn var í flösku sem hann hafði búið um í gjafaumbúðum. Maðurinn, sem var handtekinn í kjölfarið, er af erlendu bergi brotinn en með lögheimili á Íslandi. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í þágu rannsóknar málsins.
Í tilkynningu lögreglu segir að færst hafi í aukana að reynt sé að flytja inn amfetamínbasa og gerir lögreglan ráð fyrir því að hann sé svo unnin er frekar hér á landi. Þá segir lögregla að miðað við niðurstöður úr rannsóknum Háskóla Íslands í þeim tilfellum sem lagt hefur verið hald á amfetamínbasa sé hægt útbúa þrefalt það magn, eða 2,7 kíló af amfetamíni.
Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að rannsókn málsins sem fyrr sagði. Rannsókninni miðar vel að sögn lögreglu og er hinn grunaði laus úr gæsluvarðhaldi.