fbpx
Föstudagur 08.ágúst 2025
Fréttir

Óveðrið er brostið á – Sitja föst í bíl sínum og þora hvorki áfram né afturábak vegna veðurofsans – Rúðurnar brotnar

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 26. febrúar 2019 06:13

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Suðvestanstormurinn, sem spáð hafði verið að myndi skella á í morgunsárið, er nú farinn að láta að sér kveða á suðaustanverðu landinu. Á fimmta tímanum í nótt var tilkynnt um ferðafólk í vanda á leiðinni á milli Hornafjarðar og Djúpavogs. Fólkið er stopp og þorir hvorki að aka áfram né afturábak vegna veðurofsans. Rúðurnar í bílnum eru brotnar og er það ekki til að bæta ástandið.

RÚV skýrir frá þessu og hefur eftir Davíð Má Bjarnasyni, upplýsingafulltrúa Landsbjargar, að björgunarsveitarmenn séu á leið til fólksins.

Á Höfn í Hornafirði var óskað aðstoðar björgunarsveita á fimmta tímanum vegna fjúkandi þakplatna.

RÚV hefur eftir Óla Þór Árnasyni, veðurfræðingi, að vindhraðinn sé víðast hvar á Suðurlandi, frá Markarfljóti austur á austanverða Austfirði, kominn yfir 23 metra á sekúndu en það er stormstyrkur. Enn á eftir að bæta í vind.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“

Ragnar segir fólk flykkjast í Reynisfjöru: „Þetta hefur alltaf verið svona þegar verður slys“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi

Segja það ganga kraftaverki næst að hann hafi fundist á lífi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“

Kristín neitaði að gerast njósnari fyrir Þjóðverja og mátti þola fangavist fyrir – „Þeir buðu mér gull og græna skóga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slagsmál á ströndinni eftir að rússneskt lag var spilað – Sjáðu myndbandið

Slagsmál á ströndinni eftir að rússneskt lag var spilað – Sjáðu myndbandið