„Hvað er að sumum Íslendingum? Virðingarleysið fyrir umhverfinu, eigum annarra og skemmdarfíknin að drepa suma virðist vera! Þessi skemmdarfíkn sést ekki í flestum öðrum borgum Evrópu þar sem fólk hefur örugglega eitthvað þarfara að gera og sjá ekki tilganginn. En magnaðra hvað men nenna að hafa fyrir þessu þar sem er frekar langt í næsta golfvöll.“
Þetta segir Ingi Þór nokkur innan Facebook-hópsins Íbúasamtökin Betra Breiðholt og birtir mynd af golfbíl sem virðist hafa endað í Elliðaám, nánar tiltekið við Árbæjarkirkju. Innan hópsins eru sumir á því máli að unglingar hljóta að hafa ekið golfbílnum út í ánna.
„Fullorðið fólk ekur ekki golfbíl út í tjörn, unglingar gera svona til að hefna sín á fullorðnu fólki,“ skrifar Kristján nokkur. Einn kona telur fullorðið fólk alveg jafn líklegt til að gera svona. „Fullorðnir gera þetta nú alveg og ekki allir unglingar sem óþekkast eitthvað eru að því til að hefna sin á þeim eldri. Veit ekki hvernig unglingur þú varst en þetta var og er nú alls ekki svona hjá unglingum sem ég þekki,“ skrifar konan.