fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
Fréttir

Sveinn Gestur og Börkur í verkalýðsbaráttu á Litla-Hrauni: „Halldór er tuskumenni og heigull“

Sveinn Gestur Tryggvason laumast á netið og hraunar yfir forstöðumann Litla-Hrauns

Hjálmar Friðriksson
Föstudaginn 2. febrúar 2018 20:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að Sveinn Gestur Tryggvason, sem situr af sér dóm vegna andláts Arnars Jónssonar Aspar, vandi Halldóri Vali Pálssyni, forstöðumanni á Litla-Hrauni, ekki kveðjurnar á Facebook-síðu sinni. Sveinn Gestur má ekki vera á netinu en virðist hafa komist í 4G-samband á Hólmsheiði þangað sem Halldór flutti Svein Gest nýverið. Sveinn Gestur segir forstöðumanninn „tuskumenni“ og „heigul“.

Sveinn Gestur er sagður vera einn þeirra sem hafa mótmælt refsiaðgerðum Halldórs Vals einna háværast. Fangar fóru nýverið í verkfall, lögðu niður störf og hættu að mæta til náms, þar sem Halldór lokaði íþróttasalnum og takmarkaði heimsóknir barna. Það gerði Halldór vegna árásar þriggja fanga á 18 ára hælisleitanda. Er nú öllum föngum refsað fyrir ofbeldi hinna.

Heimildir DV innan fangelsisins herma að sá atburður hafi verið skrumskældur í fjölmiðlum. Pilturinn hafi verið laminn, ekki vegna þjóðernis hans heldur fremur vegna dólgsháttar hans við aðra fanga. Enn fremur hafi verið talað líkt og hálft fangelsið hafi átt þátt í árásinni meðan hið sanna sé að þrír menn hafi ráðist á piltinn. Föngum þyki því stórkostlega ósanngjarnt að öllum sé refsað fyrir þennan atburð sem örfáir fangar áttu þátt í.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt

Verðmætur suðumaður og vel liðinn rekinn fyrirvaralaust úr starfi eftir dularfullt tölvuhvarf – Riftunin reyndist þó dýrkeypt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“

Fyrrum forstjóri CIA segir að áætlun Trump varðandi stríðið í Úkraínu sé „barnaleg og ófullkomin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“

Lindakirkju barst dularfullt bréf – „Olli þó smá vangaveltum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“

Guðmundur var sviptur lækningaleyfi en segist einfaldlega hafa tilkynnt símaþjónustu til landlæknis -„Þeir eiga að kunna lögin“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur

Nicolas ætlar áfram að taka myndir af holum og birta á samfélagsmiðlum – Holukort sýnir allar tilkynntar holur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“

Spæjarastofan PPP stal líka gögnum frá stórum þrotabúum – „Merkilegir póstar ekki tengdir málum“