fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fréttir

Verður núna líf og fjör á Hlemmi?

Mathöllin opnuð fljótlega

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 6. ágúst 2017 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það hefur oft verið líflegra við Hlemm en undanfarin ár. Þó að þar séu enn tengistöðvar fyrir strætisvagna dugar það ekki til að glæða torgið miklu mannlífi enda er sjálft biðstöðvarhúsið lokað. Nú standa vonir til þess að mannlíf á Hlemmi muni brátt verða meira og fjölskrúðugra með opnun Mathallar í gamla biðstöðvarhúsinu sem mun hýsa tíu aðila, veitingastaði og matarkaupmenn. Markmið þeirra sem reka Mathöllina er að fá mannlíf til að blómstra á Hlemmtorgi sem aldrei fyrr.

Nafnið Hlemmur er dregið af brúarstubbi sem var yfir Rauðará en hún rann þar sem gatan Rauðarárstígur er núna. Fólk komst því fótgangandi eða á hestbaki yfir ána vegna „hlemmsins“. Á svæðinu var vatnsþró þar sem hægt var að brynna hestum og síðar þegar bílar höfðu leyst hesta af hólmi sem farartæki var lengi bensínstöð BP á Hlemmi. Gasstöð var starfrækt á Hlemmi frá 1910 til 1956 og stendur gamla Gasstöðvarhúsið ennþá við torgið.

Gamla gasstöðin
Gamla gasstöðin

Leigubílastöðvar hafa verið við Hlemm óslitið frá stríðsárum en árið 1970 voru tengistöðvar fyrir strætisvagna fluttar þangað frá Kalkofnsvegi. Árið 1978 var reist þar biðstöðvarhúsið sem þar hefur skýlt strætisvagnafarþegum undanfarna áratugi. Húsið er lokað núna en mun hýsa Mathöllina innan tíðar.

Á árunum í kringum 1980 fylltu unglingar gjarnan biðstöðvarhúsið, þeir reyktu þar innandyra og sumir neyttu áfengis og annarra vímugjafa. Unglingavandamálið á Hlemmi fjaraði nokkuð út er nær dró aldamótum en lengi vel vöndu útigangsmenn komur sínar á svæðið og barinn Keisarinn sem þarna var staðsettur var mörgum þyrnir í augum.
Útigangsmönnum við Hlemm hefur fækkað mikið og umfram allt er svæðið rólegt núorðið. Þarna eru samt nokkrir veitingastaðir í nágrenninu, kaffihús og barir, en ekki fjölsóttir.

Lækjartorg, Laugavegur og Skólavörðustígur hafa iðað af lífi undanfarin ár og ekki síst hafa erlendir ferðamenn fyllt göturnar. Þegar upp á Hlemm er komið tekur hins vegar götuysinn að hljóðna mjög og svæðið er einkennilega rólegt í samanburði við miðbæinn og Hlemm fortíðarinnar. Mathöllin gæti breytt þessu.

Mathöllin á sér erlendar fyrirmyndir

„Það hefur verið rólegt þarna undanfarið enda höllin verið lokuð og ekki mikið um að vera þarna í svolítinn tíma. En þetta er falleg bygging sem Gunnar Hansson hannaði þarna upphaflega árið 1978. Hlemmur er líka eitt af fáu almennilegu torgunum í Reykjavík og var það hannað með það í huga að þarna yrði mikið mannlíf og einhvers konar miðpunktur sem átti að tengja umferðina saman. Við teljum að auðvelt sé að fylgja þeirri hugmynd eftir,“ segir Ragnar Egilsson, framkvæmdastjóri Hlemmur Mathallar. Tíu aðilar munu bjóða upp á mat og veitingar í Mathöllinni á Hlemmi:

„Svona mathallir eru oft vendipunktar í hverfum og verða miðstöðvar fyrir mannlífið almennt og það er hugmyndin með þessari mathöll að blása lífi í hverfið. Þessi nýja alda markaða af þessu tagi, t.d. Copenhagen Street Food, Torvehallen og Great Nordic Food Hall eru viðmið sem við lítum til. Þarna verða tíu veitingastaðir og kaupmenn. Þetta eru fyrst og fremst veitingastaðir, en þó verða þarna íslenskir grænmetisbændur með grænmeti í lausasölu og ýmsa grænmetisrétti á boðstólum. Þarna verður Ísleifur heppni sem verður með ísgerð með fljótandi köfnunarefni, Jómfrúin verður þarna með sinn fyrsta nýja stað fyrir utan staðinn við Lækjargötu, síðan verður alvöru Taco-staður með taco og ýmislegt annað mexíkóskt góðgæti, hann heitir La Poblana. Bánh Mí er staður sem verður með víetnamskar samlokur. Veitingastaðurinn Borðið úr Vesturbænum verður með langhangikjöt, súrsað grænmeti og ýmislegt annað góðmeti, þau verða mitt á milli þess að vera kaupmaður og veitingastaður. Kröst verður með grill og gömul vín. Skál! verður með gæðabjór og barmat. Te og kaffi verður með Micro Roast og Brauð & Co. verður þarna með nýjan stað, sinn þriðja, og býður upp á súrdeigsbrauð, sætabrauð og pítsur,“ segir Ragnar.

Frumleiki og gæði eiga að einkenna framboðið í Mathöllinni: „Þarna verða engar stórar keðjur. Sumir hafa verið með rekstur annars staðar en eru þarna að bjóða upp á sérstaka útgáfu af sínu, en aðrir eru að opna starfsemi í fyrsta sinn.“

Strætisvagnar munu áfram stöðva á Hlemmi

„Við höfum enga aðkomu að strætó. Það liggur fyrir að flytja strætisvagnastöðvarnar niður á BSÍ þegar BSÍ hefur verið uppgerð og það er ekki að fara að gerast alveg á næstunni. En jafnvel eftir að tengistöðin hefur verið flutt niður á BSÍ þá verða áfram strætisvagnaferðir og stoppistöð hér. Það verður bara ekki aðalstöð,“ segir Ragnar aðspurður um framtíð strætisvagna á Hlemmi. Hann segist fagna strætó sem og öllu öðru mannlífi á svæðinu.

En er áhættusamt að opna mathöll á þessu svæði sem hefur verið svo rólegt lengi?

„Veitingabransinn er alltaf áhættusamur en ég er mjög bjartsýnn á þetta. Kosturinn við mathallir er líka sá að þegar einn aðili verður vinsæll þá dregur hann að fólk fyrir alla hina. Þannig að þetta er einn fyrir alla og allir fyrir einn. Fjölbreytnin þarna er líka styrkur þannig að þó að einhver verði leiður á einum aðila er stutt yfir í þann næsta.“
Reykjavík á biðstöðvarhúsið áfram. Fyrirtækið Hlemmur Mathöll, sem Ragnar er í forsvari fyrir, leigir húsið af borginni og framleigir það áfram til rekstraraðilanna sem verða inni í höllinni. En á Ragnar von á því að erlendir ferðamenn flykkist á Hlemm eftir opnun Mathallarinnar?

„Fólk kannast við svona mathallir frá öðrum löndum og verður örugglega ekki lengi að kveikja á perunni. Hins vegar er það í sjálfu sér ekki okkar markmið að kynna þetta fyrir erlendum ferðamönnum heldur fyrir Reykvíkingum sjálfum. En við erum að fara hér inn í eitthvað sem fólk kannast við og það verður ekki erfitt að sannfæra fólk um ágæti svona mathalla.“

Opnun Mathallarinnar er ráðgerð 15. ágúst en sú tímasetning er ekki endanlega staðfest. Ljóst er að höllin verður opnuð í ágústmánuði. Opið verður frá morgni til kvölds alla daga vikunnar en endanlegur afgreiðslutími hefur ekki heldur verið fastsettur. Leyfi hefur fengist fyrir því hafa opið frá 7 á morgnana til 11 á kvöldin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“

Fyrrum kærasti Öldu reyndi að ræna henni – „Ég henti mér út úr bíln­um“
Fréttir
Í gær

Segir tafir á Hvammsvirkjun ekkert hafa með náttúruvernd að gera heldur lagaflækjur og mistök

Segir tafir á Hvammsvirkjun ekkert hafa með náttúruvernd að gera heldur lagaflækjur og mistök
Fréttir
Í gær

Riddarar kærleikans á kærleikshringferð um landið

Riddarar kærleikans á kærleikshringferð um landið
Fréttir
Í gær

„Þessar barnadýnur eru þá taldar hættulegar eða ekki æskilegt að börn sofi á þeim. Sama með þessi plastleikföng sem eru mjúk“

„Þessar barnadýnur eru þá taldar hættulegar eða ekki æskilegt að börn sofi á þeim. Sama með þessi plastleikföng sem eru mjúk“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja tvo launmorðingja hafa verið skotna til bana í morgun

Segja tvo launmorðingja hafa verið skotna til bana í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Peter Jackson lykilmaður í að endurlífga risastóran útdauðan fugl – „Þetta yrði mjög hættulegt dýr“

Peter Jackson lykilmaður í að endurlífga risastóran útdauðan fugl – „Þetta yrði mjög hættulegt dýr“