Baldri Kolbeinssyni og Styrmi Haukdal lenti saman með blóðugum afleiðingum
Til alvarlegra átaka kom á Litla-Hrauni í miðri viku sem endaði með því að fangi beit efri vörina af samfanga sínum. Atvikið átti sér stað á meðan útivistartíma fanganna stóð, nánar tiltekið á gervigrasvelli við fangelsið. Hinn slasaði var þegar fluttur undir læknishendur á meðan gerandinn var látinn sæta einangrun.
Samkvæmt heimildum DV hófst atburðarásin þannig að föngunum Baldri Kolbeinssyni og Styrmi Haukdal Snæfeld Kristinssyni varð sundurorða. „Þeir voru að rífast um fíkniefni og síðan fóru þeir að slást. Það reyndi einn fangi að stíga inn á milli en sá fékk þung högg frá báðum aðilum. Hann er með gervigóm sem brotnaði í þrjá hluta,“ segir sjónarvottur í samtali við DV. Að hans sögn hafði Styrmir betur í slagsmálunum og hafði barið Baldur „í spað“ þegar að blóðugum endalokunum kom. Þessu lauk með þeim hætti að Styrmir tók sér stöðu klofvega yfir Baldri og hugðist halda barsmíðunum áfram þegar Baldur reisti sig upp og beit í andlit Styrmis. Náði Baldur að bíta efri vör Styrmis og beit hana í sundur af öllu afli. Hann spýtti síðan stykkinu út úr sér á gervigrasið.
„Það var hrikalegt að sjá Styrmi skríða alblóðugan um gervigrasið í leit að stykkinu úr efri vörinni“
Herma heimildir að Styrmir hafi orgað af sársauka og fossblæddi úr honum, meðal annars yfir Baldur. Fangaverðir brugðust fljótt við og tóku Baldur úr umferð en Styrmi var veitt aðhlynning. „Það var hrikalegt að sjá Styrmi skríða alblóðugan um gervigrasið í leit að stykkinu úr efri vörinni,“ segir sjónarvotturinn. Þegar Baldur var dreginn í burtu öskraði hann hróðugur: „Ég beit af honum vörina.“
Samkvæmt heimildum DV tókst læknum að sauma vörina aftur á Styrmi.
Tvímenningarnir eiga langan sakaferil að baki. Baldur hefur áður átt í skærum við samfanga sína. Þann 10. maí 2014 veittist hann að samfanga sínum, sem dæmdur hafði verið fyrir kynferðisbrot gegn barni, og makaði saur í andlit hans. Í frétt DV frá þeim tíma kemur fram að Baldur hefði tekið um höfuð mansins og „makað og troðið saur í andlit hans og munn og því næst slegið hann tvisvar til þrisvar í höfuð og líkama.“ Hafði Baldur saurinn meðferðis í poka innanklæða.
Þá var greint ítarlega frá samskiptum Baldurs og strokufangans Matthíasar Mána Erlingssonar. Þeir réðust gegn fangaverði á Litla-Hrauni í maí 2013 og nokkrum mánuðum síðar réðst Baldur fólskulega á Matthías Mána í félagi við annan mann og barði hann ítrekað með lás í andlitið.
Baldur, sem er fæddur árið 1990, afplánar nú 18 mánaða dóm sem hann hlaut 4. maí síðastliðinn. Um var að ræða alls ellefu brot, meðal annars húsbrot, þjófnaði, tilrán til ráns, hylmingu og fíkniefnalagabrot.
Styrmir, sem fæddur er árið 1977, afplánar fjögurra ára fangelsisdóm fyrir að hafa stungið mann í brjóstið fyrir utan smáhýsi við Fiskislóð í Reykjavík í byrjun árs 2015. Árásin kom í kjölfar þess að Styrmir og brotaþolinn höfðu tekist á um talsverða hríð og brúkað meðal annars tunnur, skóflur og grindur til verksins. Átökunum lauk með hnífstungunni en afleiðingarnar voru þær að fjögurra sentimetra sár myndaðist á brjósti brotaþola. Báðir voru undir áhrifum eiturlyfja þegar atvikið átti sér stað.
Styrmir hefur ellefu sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegningar- og umferðarlögum. Hann hefur fimm sinnum verið dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás, fyrst árið 1994, og setið vel á sjötta ár innan veggja fangelsa landsins.
Í viðtali við hann í DV í maí 2004 kom fram að hann hefði skorið móður sína á háls þremur árum fyrr. Styrmir var dæmdur ósakhæfur vegna geðklofa en blessunarlega lifði móðir hans árásina af og hlaut ekki varanlegan skaða.