fbpx
Laugardagur 31.maí 2025
Fréttir

Facebook-síða Sigmundar logar

„Þú ert hér með rekinn“

Einar Þór Sigurðsson
Sunnudaginn 3. apríl 2016 21:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að viðtalið við Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í aukaþætti Kastljóss í kvöld hafi vakið mikla athygli. Sigmundur gekk út úr viðtali við fréttamann Sveriges Television, Sven Bergman, og Jóhannesar Kr. Kristjánssonar sem reyndu að spyrja Sigmund út í félagið Wintris.

Sjá einnig:
Árni Páll: Ríkisstjórnin rúin trausti og verður að fara frá

Panama-skjölin og hlutdeild Sigmundar Davíðs í fyrstu frétt á BBC

Bjarni Benediktsson reyndi að leyna eignarhaldi sínu á aflandsfélagi

Í viðtalinu var Sigmundur meðal annars spurður hvort hann hefði notast við aflandsfélög. Sigmundur neitaði því. Þegar hann var spurður hvort hann kannaðist við félagið Wintris kom fát á Sigmund sem reyndi að útskýra að félagið væri á vegum eiginkonu hans, Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur. Hafa ber í huga að viðtalið var tekið áður en Anna Sigurlaug birti stöðufærslu um félagið á Facebook.

Sigmundur átti félagið til heminga við Önnu Sigurlaugu, en hann seldi henni 50 prósenta hlut sinn í því á gamlársdag 2009. Kaupverðið var einn Bandaríkjadalur sem Sigmundur reyndi þó að þræta fyrir.

Fjölmargir hafa tjáð sig um málið og hafa ófáir látið til sín taka á Facebook-síðu Sigmundar Davíðs. Fjölmargir krefjast afsagnar hans á meðan aðrir taka upp hanskann fyrir ráðherra og segjast standa með honum. Þeir eru þó í miklum minnihluta.

„Þú myndir gera þjóðinni stóran greiða með því að segja af þér. Það væri svo sannarlega virðingarvert fordæmi,“ segir Geir Sigurðsson á meðan Hlynur Ólafur Pálsson segir einfaldlega: „Þú ert rekinn“.

Þorsteinn Gíslason segist standa með forsætisráðherra og eiginkonu hans: „Haltu áfram þínu góða starfi ekki láta þessar nornaveiðar hrekja þig i einhverja vitleysu, stend 100% með ykkur hjónum.“ Um 150 manns hafa tjáð sig undir færslu sem Sigmundur setti á Facebook-síðu sína í dag, en flestar athugasemdirnar hafa komið eftir að viðtalið var sýnt í Kastljósi í kvöld.

Eins og greint hefur verið frá má gera ráð fyrir því að vantrausttillaga verði lögð fram á Alþingi. Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði meðal annars á Facebook-síðu sinni í kvöld að hann trúi því ekki að meirihluti þingsins muni greiða atkvæði gegn tillögu um vantraust.

„Við búum í heimi þar sem fáránlega ólíklegir atburðir eiga sér stað á hverjum einasta degi og það hættir í sjálfu sér að koma manni á óvart að eitthvað stórkostlega ólíklegt hafi átt sér stað. En ég neita að trúa því og ætla ekki að trúa því að meirihluti þingsins muni greiða atkvæði gegn tillögu um vantraust eftir þetta,“ sagði Helgi Hrafn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, tók í sama streng og Helgi. „Forsætisráðherra Íslands er fremstur í flokki kjörinna fulltrúa sem kjósa að spila ekki eftir þeim leikreglum sem við höfum sett okkur sem samfélag og leyna í ofanálag þeim upplýsingum. Þetta gengur ekki lengur. Við verðum sem samfélag að takast á við þennan algjöra trúnaðarbrest og ráðamenn eiga að axla ábyrgð,“ sagði Katrín.

Umræðan á Facebook-síðu Sigmundar:

Konan mín sem hefur alltaf viljað leggja sitt af mörkum til íslensks samfélags, konan sem tapaði á falli bankanna, taldi…

Posted by Sigmundur Davíð Gunnlaugsson on Sunday, 3 April 2016

Facebook-færsla Helga Hrafns:

Í ljósi umfjöllunar Kastljóss um tengsl ráðamanna við aflandsfélög:Í þingmannahópi meirihlutans á Alþingi, í Sjálfstæð…

Posted by Helgi Hrafn Gunnarsson on Sunday, 3 April 2016

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Alvarlegt slys við Hvítá

Alvarlegt slys við Hvítá
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oscar sendur til Kólumbíu á þriðjudag – „Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð“

Oscar sendur til Kólumbíu á þriðjudag – „Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka

Frægir fjárfestu í Íslandsbanka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir

Segja Ásdísi ekki skilja stjórnskipulag bæjarins sem hún stýrir