„Það hefur verið ágætlega rólegt á sviði netbrota á undanförnu en okkur eru farnar að berast nokkrar tilkynningar um Lotterý-svindl,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á Facebook. Þar varar hún við ákveðinni tegund netsvindls þar sem fólki berast tilkynningar um að það hafi unnið í lottói – sem það tók aldrei þátt í. Að sögn lögreglu sést að svindlararnir hafa ekki vandað sérstaklega til verka og flestir ættu að sjá í gegnum svindlið. Allur sé þó varinn góður og enn í dag láti einn og einn gabbast.
Lögreglan segist taka öllum ábendingum um svindl fagnandi. Netfangið er abendingar@lrh.is en einnig má senda inn á Facebook.