fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025

Háður klámi en kennir eiginkonunni um: „Mig dreymir um að búa í opnu evrópsku samfélagi“

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 19. ágúst 2020 12:00

Mynd/The Sun

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður segist vera háður því að horfa á klám, en kennir eiginkonu sinni um það. Hann leitar ráða til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun.

„Ég er hamingjusamlega giftur en ég er háður klámi. Ég hef bæði sent og fengið send kynlífsmyndbönd og skilaboð frá ókunnugum konum á netinu og konan mín var að komast að því. En mér finnst þetta eiginlega henni að kenna,“ segir maðurinn.

„Ég hef verið að gera þetta í nokkur ár og reynt að hætta. Konan mín er mjög reið, hún hótaði að fara frá mér með drengina okkar tvo. Ég lofaði að þetta væri í fyrsta og eina skiptið sem ég gerði þetta, en hún verður að taka einhverja ábyrgð líka. Við erum á þrítugsaldri og stundum aðeins kynlíf tvisvar eða þrisvar í viku. Það er ekki nóg,“ segir hann.

„Í mínu landi eru reglurnar strangar, það er ekki í lagi að halda framhjá og stunda kynlíf utan hjónabands. Mig dreymir um að búa í opnu evrópsku samfélagi þar sem ég get gert það sem ég vil.“

Deidre bendir manninum á að í evrópskum löndum er yfirleitt ekki í lagi að halda framhjá makanum.

„Nema það sé gert með samþykki beggja aðila. Að halda framhjá er að halda framhjá, þó það sé á netinu. Þú ert að reyna að kenni henni um það en þú veist að það er rangt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Chelsea hefur samtal við enska landsliðsmanninn

Chelsea hefur samtal við enska landsliðsmanninn
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Þáttur Jimmy Kimmel tekinn af dagskrá vegna ummæla hans um Charlie Kirk

Þáttur Jimmy Kimmel tekinn af dagskrá vegna ummæla hans um Charlie Kirk
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Hægri öfgamenn bera ábyrgð á langflestum pólitískum morðum – Allar rannsóknir á einn veg

Hægri öfgamenn bera ábyrgð á langflestum pólitískum morðum – Allar rannsóknir á einn veg
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Grunlaus fótboltaaðdáandi slær í gegn – „Ég fékk Coldplay-meðferð“

Grunlaus fótboltaaðdáandi slær í gegn – „Ég fékk Coldplay-meðferð“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.