fbpx
Sunnudagur 30.nóvember 2025

Justin Timberlake og Jessica Biel fagna nýjum erfingja – enginn vissi að hún væri ófrísk

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 20. júlí 2020 18:00

Lúmsk: Jessicu og Justin tókst að halda þunguninni leyndri fram á síðasta dag.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjörnuhjónin komu fjölmörgum á óvart þegar það fréttist að þau hefðu eignast lítinn dreng í vikunni en þeim hafði tekist að halda þunguninni leyndri fyrir öllum öðrum en nánustu vinum og fjölskyldu. Þau hafa haldið til á heimili sínu í Montana síðan í mars og Covid faraldurinn hefur gert þeim auðveldara fyrir en ella að halda sig út af fyrir sig. Justin og Jessica hafa verið saman frá árinu 2007. Þau giftu sig árið 2012 og eiga fyrir fimm ára gamlan son, Silas Randall. Fregnir herma að móðir Jessicu, Kimberly Conroe Biel, hafi dvalist hjá þeim eftir barnsburðinn en það var svo vinur hennar sem staðfesti fregnirnar og kyn barnsins.

Stóri bróðir: Krúttið Silas Randall er fimm ára.
Glæsileg: Hjónin fallegu á Emmy verðlaunahátíðinni árið 2018.

Í fyrra stóð samband Jessicu og Justins á brauðfótum í kjölfar myndbirtinga af Justin ásamt mótleikkonu sinni Alishu Wainwright við tökur á kvikmyndinni Palmer. Á myndunum sem teknar voru á bar í New Orleans sjást þau haldast í hendur undir borði og Alisha sést hvíla hönd sína á hné hans. Justin fann sig knúinn til að biðjast opinberlega afsökunar á hegðun sinni og birti bréf á Instagram síðu sinni þar sem hann kvaðst hafa drukkið of mikið og sýnt af sér slæma dómgreind en tók skýrt fram að ekkert óviðurkvæmilegt hefði átt sér stað á milli þeirra og klykkti út með orðunum; „Ég hefði átt að vita betur. Þetta er ekki það fordæmi sem ég vil setja syni mínum.“

Slæm dómgreind: Justin baðst opinberlega afsökunar á athæfi sínu.

 

 

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

14 ára drengur varð fyrir járnbrautalest á Englandi

14 ára drengur varð fyrir járnbrautalest á Englandi
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Kolla sendir pillu: „Vonandi verður aldrei svo illa komið fyrir íslensku þjóðinni að hún komi Miðflokknum til valda“

Kolla sendir pillu: „Vonandi verður aldrei svo illa komið fyrir íslensku þjóðinni að hún komi Miðflokknum til valda“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Nýr Old Trafford fremstur á meðal jafninga í umsókn Bretlands og Írlands til að halda HM

Nýr Old Trafford fremstur á meðal jafninga í umsókn Bretlands og Írlands til að halda HM
Fókus
Fyrir 20 klukkutímum

Leikarinn fagnar bráðum 100 ára afmæli og segir að lykilinn að langlífi sé að forðast þetta tvennt

Leikarinn fagnar bráðum 100 ára afmæli og segir að lykilinn að langlífi sé að forðast þetta tvennt
433Sport
Í gær

Hugsar súr út í ákvörðun Arnars eftir það sem gerðist í vikunni – „Að íslenska landsliðið hafi leyft sér það“

Hugsar súr út í ákvörðun Arnars eftir það sem gerðist í vikunni – „Að íslenska landsliðið hafi leyft sér það“
433Sport
Í gær

Lét gelda sig til að þurfa ekki að horfa á sama barnaefnið í fimmta sinn

Lét gelda sig til að þurfa ekki að horfa á sama barnaefnið í fimmta sinn

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.