fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025

Rússneski áhrifavaldurinn búinn að missa 127 kíló og 9000 fylgjendur

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 26. júní 2020 14:30

T.v.: Marina með fyrrverandi eiginmanni sínu. T.h: Marina með kærasta sínum og fyrrum stjúpsyni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti heimsathygli þegar rússneski áhrifavaldurinn Marina Balmasheva fór frá eiginmanni sínum til tíu ára eftir að hafa fallið fyrir stjúpsyni sínum, Vladimir „Vova“ Shavyrin.

Marina hefur ýmist hlotið lof eða last fyrir að hafa byrjað með stjúpsyni sínum. Hún virðist hafa nokkuð öfgakenndan lífstíl ef marka má mjög miklar líkamsbreytingar hennar sem og unga kærastann en hvort tveggja hefur vakið heimsathygli.

 

Marina er með yfir 430 þúsund fylgjendur og hefur ekki farið leynt með þá staðreynd að hún sé í sambandi með Vladimir og að hún hafði tekið þátt í uppeldi hans frá sjö ára aldri. Marina missti 9000 fylgjendur eftir að hún greindi frá sambandinu en þó það flokkist ekki sem ólöglegt hafa fylgjendur hennar kallað það ósiðlegt.

Sjá einnig: Rússneskur áhrifavaldur ólétt af barni stjúpsonar síns – Eiginmaðurinn heyrði í þeim stunda kynlíf

Fyrir og eftir mynd sem Marina hefur deilt á samfélagsmiðlum.

Marina varð fyrst vinsæl á samfélagsmiðlum eftir að hún byrjaði að deila þyngdartapsferli sínu. Nýlega birti hún „fyrir og eftir“ mynd á Instagram og ræddi meðal annar sum hversu erfitt það hefur verið að hreyfa sig í samkomubanninu. News.au greinir frá.

Marina sagðist einnig hafa áhyggjur af því að þyngjast mikið á meðgöngu og spurði fylgjendur sína um hversu mikið þeir þyngdust og hve mikið af þeirri þyngd „varð eftir á spítalanum.“

Marina var einungis 22 ára þegar hún gekk að eiga föður Vladimir, Alexey Shavyrin, en er nú 45 ára. Hjónabandið entist í tíu ár og á því tímabili ættleiddi hún börnin hans fimm og meðal annars Vladimir. Hún heldur áfram að ala upp stjúpbörn og yngri systkini kærasta síns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Svarar fyrir meint framhjáhald – Segist ekki hafa verið að stinga undan konunni

Svarar fyrir meint framhjáhald – Segist ekki hafa verið að stinga undan konunni
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Segjast ekki enn hafa fengið greitt fyrir söluna á Cafe Adesso og Sport & Grill

Segjast ekki enn hafa fengið greitt fyrir söluna á Cafe Adesso og Sport & Grill
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Vandræðaleg mistök innflytjendastofnunar Trump – Reyndu að vísa frumbyggja úr landi

Vandræðaleg mistök innflytjendastofnunar Trump – Reyndu að vísa frumbyggja úr landi
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

5 hlutir sem þú ættir að henda strax af baðinu

5 hlutir sem þú ættir að henda strax af baðinu
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Rekinn fyrir að mæta ekki í vinnuna og krafðist þá bóta

Rekinn fyrir að mæta ekki í vinnuna og krafðist þá bóta
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Mbappe gefur lítið fyrir eigið afrek

Mbappe gefur lítið fyrir eigið afrek
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Starfsmaður Landspítalans fletti upp í sjúkraskrá án heimildar – Gaf upp ástæðu sem stóðst ekki skoðun

Starfsmaður Landspítalans fletti upp í sjúkraskrá án heimildar – Gaf upp ástæðu sem stóðst ekki skoðun
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Þessir fimm virðast geta bókað sæti með enska landsliðinu á HM – Voru sendir í leynilega myndatöku

Þessir fimm virðast geta bókað sæti með enska landsliðinu á HM – Voru sendir í leynilega myndatöku
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Messi olli vandræðum fyrir Íslendinga á Spáni – „Hafi eiginlega verið pirrandi“

Messi olli vandræðum fyrir Íslendinga á Spáni – „Hafi eiginlega verið pirrandi“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.