fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025

Kennari öskrar á krakka og óskar þeim kvalafulls dauða úr COVID-19

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 30. apríl 2020 13:00

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kennari er nú undir rannsókn fyrir að öskra á nemendur og óska þeim hægs og kvalafulls dauða úr COVID-19. Atvikið náðist á myndband og hefur farið víða um samfélagsmiðla.

Konan, sem er kennari í New Jersey, var að öskra á tvo drengi fyrir að brjóta reglur um samkomubann. Strákarnir voru að spila fótbolta í almenningsgarði.

Konan var úti að ganga með hund sinn þegar hún sá þá og ákvað að segja þeim til syndanna.

„Þið eruð ástæðan fyrir því að við séum í þessum aðstæðum. Þið eruð vandamálið, ekki lausnin. Haldið áfram að taka upp. Hverjum ætlið þið að sýna þetta? Deilið þessu á samfélagsmiðla. Þið eruð hálfvitarnir fyrir að gera rangt. Ég er bara að reyna að bjarga rassgatinu ykkar og lífi ykkar. En ókei, deyið bara. Ég vona að þið fáið báðir kórónuveiruna. Ég vona að þið deyið báðir hægum og kvalafullum dauða,“ öskrar konan.

Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Samkvæmt The Trentonian er konan stærðfræðikennari við Steinert-skólann í New Jersey. Hún býr nálægt almenningsgarðinum og þetta var ekki í fyrsta skipti sem hún lætur fólk heyra það fyrir að brjóta reglur um samkomubann.

Drengirnir viðurkenna að þeir hefðu ekki átt að vera í garðinum en eru hissa að kennarinn hafi óskað þeim dauða.

„Ég var í sjokki þegar hún sagði þetta. Ég vissi ekki að einhver gæti sagt svona, hvað þá kennari,“ sagði einn drengjanna.

Kennarinn er nú undir rannsókn fyrir ummæli sín. Borgarstjórinn Jeff Martin segist ekki hafa séð myndbandið en fordæmir hegðun hennar samt sem áður.

„Enginn ætti að óska öðrum skaða. Þetta er mjög alvarlegt. Það hafa allavega 50 borgarbúar látist úr þessu, 50 fjölskyldur sem þjást. Þetta er ekkert til að grínast með. Kennari eða ekki, það er ekki í lagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Vandræðaleg mistök innflytjendastofnunar Trump – Reyndu að vísa frumbyggja úr landi

Vandræðaleg mistök innflytjendastofnunar Trump – Reyndu að vísa frumbyggja úr landi
Eyjan
Fyrir 6 klukkutímum

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Úrsúla frá Lundi

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Úrsúla frá Lundi
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Nefnd á vegum ensku deildarinnar kveður upp áhugaverðan dóm um Van Dijk markið

Nefnd á vegum ensku deildarinnar kveður upp áhugaverðan dóm um Van Dijk markið
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir frá því sem hann hugleiddi á fyrstu dögum Arnars – „Hvaða bilun er að fara af stað hérna?“

Segir frá því sem hann hugleiddi á fyrstu dögum Arnars – „Hvaða bilun er að fara af stað hérna?“
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Segir að fólk noti þetta saklausa forrit til að halda framhjá – Það er í öllum iPhone símum

Segir að fólk noti þetta saklausa forrit til að halda framhjá – Það er í öllum iPhone símum
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Skaðlegt þegar fólk lætur eins og það sé með OCD því það vill hafa snyrtilegt í kringum sig

Skaðlegt þegar fólk lætur eins og það sé með OCD því það vill hafa snyrtilegt í kringum sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 15 klukkutímum

Óttar Guðmundsson skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn og Jón Þorláksson

Óttar Guðmundsson skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn og Jón Þorláksson
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú á Strákunum okkar?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú á Strákunum okkar?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.