fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024

Manuela í partíi í Los Angeles með Khloé Kardashian

Ritstjórn Bleikt
Laugardaginn 23. febrúar 2019 20:41

Manuela í góðum félagsskap. Myndir: Skjáskot af Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breski tískurisinn PrettyLittleThing blés til heljarinnar teitis í vikunni í Los Angeles til að fagna nýrri verslun í borginni.

https://www.instagram.com/p/BuN9kWkBrPx/

Meðal gesta var Manuela Ósk Harðardóttir, fyrrverandi fegurðardrottning og athafnakona, sem leyfði fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast vel með herlegheitunum. Teitið var glæsilegt í alla staði og var verslunin skreytt með blöðrum í nánast öllum tónum af bleiku, bleikum rósum, neon skiltum og einhyrningum.

https://www.instagram.com/p/BuJQad3l1GW/

Þekktasti gesturinn í teitinu var án efa raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian, sem hefur látið lítið fyrir sér fara síðan komst upp um að hennar heittelskaði, Tristan Thompson, hefði haldið framhjá henni með fjölskylduvini. Telja nú margir að Khloé sé á leiðinni í samstarf með PrettyLittleThing en systir hennar, Kourtney, fór í samstarf við fyrirtækið árið 2017. Meðal annarra stjarna sem hafa unnið með fyrirtækinu eru Sofia Richie og Olivia Culpo.

https://www.instagram.com/p/BuI_4G8Ftca/

Tónlistarmaðurinn Will.i.am var einnig í veislunni, sem og fyrirsætan Ashley Graham, og sáu rappararnir Yg og Tyga um að skemmta fólki. Hér fyrir neðan má sjá myndband úr veislunni.

https://www.instagram.com/p/BuLbXEmF7aO/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá gætir þú þurft að passa þig í sumar

Ertu að taka inn lyf að staðaldri? – Þá gætir þú þurft að passa þig í sumar
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Einn forsetaframbjóðandi gæti bæst við

Einn forsetaframbjóðandi gæti bæst við
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Þrjú lið í London hafa boðið Silva samning

Þrjú lið í London hafa boðið Silva samning
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Stórstjarnan skorar utan vallar þrátt fyrir erfiðleikana í vinnunni – Talin vera ein fallegasta kona landsins

Stórstjarnan skorar utan vallar þrátt fyrir erfiðleikana í vinnunni – Talin vera ein fallegasta kona landsins
FréttirPressan
Fyrir 10 klukkutímum

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf

Þetta eru þær tegundir starfa sem gervigreindin mun fyrst gera óþörf
Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Þess vegna skaltu aldrei haga þér illa í flugvél

Þess vegna skaltu aldrei haga þér illa í flugvél
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Beckham að rifna úr stolti – Sjáðu færsluna sem hann birti

Beckham að rifna úr stolti – Sjáðu færsluna sem hann birti

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.