fbpx
Þriðjudagur 02.desember 2025

Gjafaleikur Bleikt og Blaka – Minn sykursæti lífsstíll

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 31. júlí 2018 10:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Minn sykursæti lífsstíll er fyrsta bók Lilju Katrínar Gunnarsdóttur sem ásamt því að vera blaðakona, heldur úti matreiðslusíðunni Blaka.is

Bakstur er helsta ástríðan í lífi Lilju og í bókinni eru uppskriftir fyrir alla – jafnt byrjendur sem lengra komna.

„Bakstur er mín hugleiðsla og ég slaka ofboðslega vel á í eldhúsinu, jafnvel þó allt sé út um allt og krakkarnir hringsólandi í kringum mig. Hugmyndin á bak við forsíðu minnar fyrstu bókar kemur þaðan. Auðvitað er hefðbundið að hafa djúsí mynd af gómsætri köku á forsíðunni eða einhverja fallega uppstillingu, en mér fannst meira spennandi að reyna að fanga mínar heimilisaðstæður á forsíðu minnar fyrstu bókar. Það gerist nefnilega mjög sjaldan að ég fái algjöran frið til að dunda mér í eldhúsinu. Ef að krakkarnir eru ekki að „hjálpa” mér þá bíða hundarnir tjúllandi spenntir eftir því að eitthvað detti á gólfið. En ég myndi ekki vilja hafa þetta öðruvísi því allur þessi asi gefur heimilinu líf, þó mér finnist ég þurfa að skúra gólfin örlítið oftar en góðu hófi gegnir.“

Bleikt.is ætlar í samstarfi við Lilju að gefa fjögur eintök af nýjustu bók hennar.

Til þess að taka þátt í leiknum þarft þú einfaldlega að:

  • Taka mynd af þínum uppáhalds augnablikum í eldhúsinu. Myndin má vera af þér/börnunum og eða maka að elda, baka eða jafnvel bara borða. Senda myndina á bleikt@bleikt.is
  • Merkja vinkonu/vin sem þig langar til þess að gefa eintak af bókinni hér á Facebook.

Dregið verður út þriðjudaginn 7. ágúst og myndin af vinningshöfum birt á síðu Bleikt.

Allir þeir sem taka þátt í leiknum fá svo boð í útgáfupartý bókarinnar.

Útgáfuboðið verður auglýst síðar á Facebook-síðu Blaka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Keyptur til City fyrir nokkrum mánuðum en vill burt – Telur loforð hafa verið svikin

Keyptur til City fyrir nokkrum mánuðum en vill burt – Telur loforð hafa verið svikin
Fréttir
Fyrir 2 klukkutímum

Sambúðarslit drógu dilk á eftir sér – Lögmenn miðluðu bankaupplýsingum í heimildarleysi

Sambúðarslit drógu dilk á eftir sér – Lögmenn miðluðu bankaupplýsingum í heimildarleysi
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Komið að ögurstundu í viðræðum um endalok stríðsins í Úkraínu

Komið að ögurstundu í viðræðum um endalok stríðsins í Úkraínu
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Sigmundur Davíð ósáttur við myndavalið – „Nú hlýt ég að hafa gert eitthvað af mér“

Sigmundur Davíð ósáttur við myndavalið – „Nú hlýt ég að hafa gert eitthvað af mér“
Fókus
Fyrir 6 klukkutímum

The Barricade Boys mæta í Hörpu

The Barricade Boys mæta í Hörpu
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Þrír hengdir á tveimur dögum – Ekki fleiri aftökur í yfir 20 ár

Þrír hengdir á tveimur dögum – Ekki fleiri aftökur í yfir 20 ár

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.