fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025

OMG pasta

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 9. apríl 2017 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er oftar en ekki sem ég heyri fólk tala um að oft eftir annasaman vinnudag sé það statt í búðinni og hafi ekki hugmynd um hvað það eigi að hafa í kvöldmatinn. Þá er ekki úr vegi að geta leitað í uppskriftir sem eru ofureinfaldar í gerð og með fáum hráefnum.

Þessi pastauppskrift er einmitt í miklu uppáhaldi á þannig dögum. Oft hef ég salat og baguette brauð með og þá er kominn ekta ítalskur veislumatur. Ég tala nú ekki um ef við bætum við glasi af hvítvíni. Uppistaðan í þessum rétti er pasta og heimagert pestó úr sólþurrkuðum tómötum, basilíku og hvítlauk en þetta er að mínu mati allt hráefni guðanna.

Matvöruverslunin Krónan er í apríl með 20% afslátt af vörum Jamie Olivers í öllum verslunum sínum sem þið lesendur góðir getið nýtt ykkur. Í samstarfi við þá mun ég koma með nokkra ofureinfalda rétti eldaða úr hráefnum frá meistara Jamie. Njótið vel!

OMG pasta

350 g Jamie Oliver tagliatelle
1 krukka (280 g) Jamie Oliver sólþurrkair tómatar með ólífuolíu
2 hvítlauksrif
1 búnt fersk basilíka
salt og pipar
50 g parmesan ostur, rifinn

  1. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
  2. Setjið sólþurrkaða tómata ásamt olíunni, hvítlauk, basilíku, salti og pipar í matvinnsluvél og maukið vel saman. Hellið blöndunni í skál og setjið parmesan saman við og að lokum pasta. Berið fram með salti og pipar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 9 klukkutímum

Farþegi sýndi flugdólgi hvar Davíð keypti ölið – Ölvaður með kynþáttafordóma og árásargjarna hegðun

Farþegi sýndi flugdólgi hvar Davíð keypti ölið – Ölvaður með kynþáttafordóma og árásargjarna hegðun
Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala

Sjálfstæðisflokkurinn: Innistæðulausir frasar – ætti heldur að hlusta en tala
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Tottenham að ræsa vélina og ætla sér að kaupa Eze

Tottenham að ræsa vélina og ætla sér að kaupa Eze
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Oliver setur glæsilegt hús sitt í Vestmannaeyjum á sölu – Er búinn að skrifa undir í Króatíu

Oliver setur glæsilegt hús sitt í Vestmannaeyjum á sölu – Er búinn að skrifa undir í Króatíu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Donnarumma sagður hafa náð saman við City um kaup og kjör

Donnarumma sagður hafa náð saman við City um kaup og kjör
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Mun City reyna að stela Simons af Chelsea?

Mun City reyna að stela Simons af Chelsea?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.