fbpx
Föstudagur 20.mars 2026

Beiðni Blac Chyna um að skrásetja „Angela Kardashian“ sem vörumerki hefur verið neitað

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Mánudaginn 3. apríl 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blac Chyna lagði inn beiðni hjá United States Patent and Trademark Office fyrir hönd fyrirtækis hennar Lashed LLC. um að skrásetja Angela Renée Kardashian sem vörumerki í desember í fyrra. Þá var hún unnusta Robert Kardashian, bróður Kardashian og Jenner systra.

Kardashian systur voru ekki sáttar við beiðnina, því ef hún hefði verið samþykkt hefði Blac Chyna einkarétt á að nota nafnið fyrir auglýsingar og í skemmtanabransanum, eins og varðandi framkomu í sjónvarpi og bíómyndum. Fyrirtæki Kim, Kourtney og Khloé Kardashian lögðu fram kæru gegn henni og mótmæltu formlega skráningu hennar.

Lögfræðingar systranna sögðu að fjölskyldumerkið „yrði fyrir tjóni, þar á meðal óbætanlegum skaða fyrir orðspor þeirra og viðskiptavild.“ Þeir ásökuðu einnig Blac Chyna um að „hún væri að sækjast eftir hagnaði af viðskiptavild þeirra og vinsældum af ásettu ráði.“

Kardashian systur unnu málið, en beiðni Blac um að skrásetja nafnið sem vörumerki var hafnað og mun hún aldrei geta notað nafnið. Þetta kemur fram á vef TMZ. Hún mun heldur ekki geta notað nafnið þó svo að hún og Rob gifti sig, en það lítur út fyrir að þau séu búin að ná sáttum og byrjuð saman aftur.

Blac Chyna og Robert Kardashian.

Blac Chyna og Robert Kardashian slitu trúlofun sinni seinna í desember. Blac flutti út með dóttur þeirra, Dream. Það var mikið drama í kjölfar sambandsslitanna og voru þau bæði dugleg að deila upplýsingum um stöðuna á samfélagsmiðlum. Eins og þegar Rob sagði að Blac Chyna hefði aðeins verið með sér til að öðlast meiri frægð og peninga. Blac svaraði því á Instagram og sagði að Rob væri andlega veikur og latur og hún gæti ekki hjálpað honum meira.

Þrátt fyrir stormasamt samband og sambandsslit, lítur út fyrir að þau ætli að reyna aftur. Blac setti inn nokkur myndbönd af þeim á Snapchat sem benda til þess að þau séu búin að taka aftur saman. Í einu myndskeiðinu sést Rob knúsa Blac aftan frá og telst þetta nokkurs konar staðfesting á sambandi þeirra samkvæmt slúðurmiðlum vestanhafs.

Sjá einnig:

Kardashian systur höfða mál gegn Blac Chyna

Rob Kardashian biðst opinberlega afsökunar eftir að Blac Chyna flutti út með dóttur þeirra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent

Velur 35 manna hóp hjá enska landsliðinu: Maguire og Mainoo snúa aftur – Velur ekki Trent
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Ungur glímukappi tekinn af lífi

Ungur glímukappi tekinn af lífi
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Tyrkirnir hóta því að fara í mál við Liverpool – Náðist að bjarga þumlinum

Tyrkirnir hóta því að fara í mál við Liverpool – Náðist að bjarga þumlinum
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni

Vill banna tveimur enskum liðum að vera með í Meistaradeildinni
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi

Hafnar gylliboðum frá Sádí til að vera áfram á Englandi
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Þurfti að læra að ganga aftur eftir slys – Hitti loks viðbragðsaðilana sem björguðu henni

Þurfti að læra að ganga aftur eftir slys – Hitti loks viðbragðsaðilana sem björguðu henni
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans

Faðir fangelsaður eftir að áverkar fundust á þriggja mánaða syni hans
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“

Hommaklám leysti 35 ára gamalt sakamál – „Ég er virkilega ánægður að þessi saga fái nú að heyrast“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.