fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Fókus

Hilary Duff sorgmædd – „Þetta er sárt“

Fókus
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 10:14

Robert Carradine og Hilary Duff á sínum tíma. Mynd: Instagram/Hilary Duff

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn Robert Carradine er látinn, 71 árs að aldri. Hann svipti sig lífi eftir langvarandi baráttu við geðhvarfasýki, að því er fjölskylda hans staðfesti í samtali við Deadline.

Carradine var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Sam McGuire í Disney Channel-þáttunum „Lizzie McGuire“, þar sem hann lék á árunum 2001 til 2004. Hann kom fram í 65 þáttum og endurtók hlutverkið í kvikmyndinni „The Lizzie McGuire Movie“ árið 2003.

Hilary Duff, sem lék dóttur hans í þáttunum, heiðraði minningu hans á Instagram í morgun.

„Þetta er sárt. Það er erfitt að horfast í augu við þessa staðreynd um gamlan vin,“ skrifaði hún og sagðist ævinlega þakklát fyrir hlýjuna og umhyggjuna sem hún hefði fundið fyrir frá „foreldrum sínum á skjánum“. Hún sagðist harmi slegin að heyra að hann hefði þjáðst og sendi fjölskyldu hans samúðarkveðjur.

Jake Thomas, sem lék bróður Duff í þáttunum, lýsti Carradine sem hæfileikaríkum og sérvitrum listamanni. „Hann var einn svalasti maður sem þú gætir hitt. Fyndinn, raunsær, stundum pirraður, alltaf dálítið sérvitur,” skrifaði Thomas en sagði að umfram allt hefði hann verið eins og hluti af fjölskyldunni.

Í yfirlýsingu frá fjölskyldu Carradine kemur fram að hann hafi háð nærri tveggja áratuga baráttu við geðhvarfasýki. Hann greindist með sjúkdóminn eftir dauða bróður síns, David Carradine, sem fannst látinn í Bangkok árið 2009.

Auk þess að leika í Lizzie McGuire var Robert Carradine þekktur fyrir hlutverk í kvikmyndunum The Big Red One (1980), Revenge of the Nerds (1984) og Escape from L.A. (1996).

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Listræn íbúð Öldu og Erlings Páls í vesturbænum

Listræn íbúð Öldu og Erlings Páls í vesturbænum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kynlífsmyndband Pamelu Anderson dregið fram í dagsljósið á ný – Dómsmál vegna ummæla um reðurstærð

Kynlífsmyndband Pamelu Anderson dregið fram í dagsljósið á ný – Dómsmál vegna ummæla um reðurstærð
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jógvan selur karlagrenið – Íbúðin fylgir með

Jógvan selur karlagrenið – Íbúðin fylgir með
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn sakar Hollywood-stjörnur um hræsni í umræðunni um ICE

Leikarinn sakar Hollywood-stjörnur um hræsni í umræðunni um ICE