fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Fókus

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 16. júní 2025 15:18

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Compass Films kynnir ORMHILDARSÖGU, nýja íslenska teiknimyndaseríu fyrir börn 7 ára og eldri. Þættirnir eru ætlaðir til sýninga árið 2026 og eru framleiddir með Projects (Ísland), Animation Studio Iceland og Letko (Pólland). Þetta er fyrsta íslenska teiknimyndaserían sem er framleidd fyrir B15 með RÚV og norrænu ríkissjónvarpsstöðvunum, ásamt þýsku sjónvarpsstöðvunum NDR og KiKA, eins og segir í fréttatilkynningu. 

ORMHILDUR er einstök íslensk sögupersóna sem sprettur úr íslenskri sagnalist og djúpri umhyggju fyrir umhverfinu. ORMHILDARSAGA gerist í framtíð þar sem jöklarnir hafa bráðnað og undan þeim koma fornar goðsagnaverur. Eftirlifendur kúldrast á eyjum í óttafullri nábúð með verunum. ORMHILDUR fær húsaskjól hjá gamla bókaverðinum Alberti sem trúir því að þau geti endurheimt fortíðina með því að læsa goðsagna verurnar aftur í ís. Ásamt Guðrúnu, Brynhildi og skoffíninu Kisa, leggja Ormhildur og Albert af stað í ferðalag til að fremja galdraseiði hátt upp í eldfjallaeyjunni Heklu. En Ormhildur uppgötvar að hún er ólík öðrum, hún er ein af verunum sjálf og er með djúpa tengingu við þær. Hún sér líka að þau eru í raun að græða jörðina. Í gegnum hrakraunir og ævintýri tekst Ormhildi að skapa jafnvægi og sátt milli veranna og mannkynsins. Serían fléttar saman umhverfismálefnum við grípandi sögu, hún hvetur til gagnrýninnar hugsunar, sjálfbærs lífsstíls og samhljóms við náttúruna. 

ORMHILDARSAGA er tímamótaverk í íslenskri 2D teiknimyndagerð fyrir börn. Hönnun þáttanna dregur innblástur frá íslenskum litum, landslagi, mynstrum og fatnaði og er full af skemmtilegum goðsagnaverum sem hafa verið aðlagaðar úr Íslendingasögum og þjóðsögum. 

Ormhildur er ótrúlega frumleg og spennandi sería: einstök blanda af ævintýrum, skemmtun og djúpum, sterkum boðskap. Aðalhetjan, Ormhildur, er ekki bara venjuleg stelpa, heldur hugrakkur og forvitinn könnuður sem tekst á við óvini og tengist verum sem aðrir óttast, og sýnir þannig að fordómar eru ekki eina leiðin til að takast á við hið óþekkta. Í heimi sem skiptist sífellt meira í fylkingar minnir þessi þáttaröð okkur á mikilvægi samstöðu, virðingar og að opna hjörtu fyrir nýjum möguleikum. Það er bæði sjaldgæft og yndislegt að sjá íslenskar þjóðsagnaverur, eins og skoffín, lifna við á jafn sjónrænan, öflugan og metnaðarfullan hátt. Við hjá KrakkaRÚV leggjum áherslu á að efla samstöðu og samkennd fremur en sundrun, að fjölbreytileiki sé ekki ógn heldur tækifæri – og Ormhildur styður þetta markmið afar vel. Við hlökkum mikið til að kynna þjóðinni fyrir Ormhildi!” segir Erla Hrund Halldórsdóttir, KrakkaRúv / RÚVkids.

Höfundur er Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir sem er íslenskur teiknari, höfundur og leikstjóri búsett í Reykjavík. Hún er með B.A.-gráðu í teiknimyndagerð og M.A. í skapandi skrifum. Verk hennar sameina gjarnan íslenskar þjóðsögur og samtíma þemu með áherslu á umhverfismál og töfraraunsæi. ORMHILDARSAGA liggur henni mjög nærri hjarta, sagan sprottin úr loftslagskvíða ungrar móður með nýfætt barn sitt. Serían, sem hefur þróast í mörg ár, sameinar ævintýri og fantasíu með húmor og viðvarandi umhverfisvitund. 

Dagskrárstjóri NDR, sem er ein helsta sjónvarpsstöð Þýskalands hefur þetta að segja um seríuna: „Það sem ég dáist mest að er þessi víðfeðmi heimur fullur af dularfullum verum og goðsagnalegum stöðum. Ormhildarsaga er fullkomin blanda af ævintýrum og eins konar heimsenda Hringadróttinssögu, en með húmor og ævintýrum sem henta börnum. Ormhildur og Kisi eru heillandi og yndislegar hetjur sem tala fyrir sátt og samlyndi. Þetta er mikilvæg meginhugmynd í ævintýrum Ormhildar: enginn er óvinur þinn bara af því að hann lítur öðruvísi út eða lifir á annan hátt. Með stórt hjarta og samkennd tekst Ormhildur á við ágreining og óvild og sýnir fram á hvernig við getum saman gert heiminn að betri stað. Sögð með stílhreinum en klassískum „Scandi-cool“ teiknistíl, þá hentar þessi vel skrifaða, djúpa og fallega saga fullkomlega stafrænum vettvangi KiKA,“ segir Holger Hermesmeyer, dagskrárstjóri NDR.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“

Bonnie Blue hætt við umdeildasta uppátæki sitt hingað til – Þetta kemur í stað „dýragarðsins“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990