fbpx
Mánudagur 18.ágúst 2025
Fókus

Að finna von í myrkrinu – Bergdís segir sína sögu

Fókus
Mánudaginn 18. ágúst 2025 15:30

Bergdís.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistin getur verið skjól. Hún getur borið sársauka, orðið að rödd þar sem orð duga ekki og veitt von. Í sinni fyrstu plötu leiðir Bergdís, 27 ára íslensk söngkona og lagahöfundur, hlustandann inn í einlægt og persónulegt ferðalag þar sem fegurð fæðist úr myrkrinu.

Frá Danmörku til Íslands og frá rauli til laga

Bergdís fæddist í Danmörku en flutti til Íslands átta ára. Hún man varla eftir tíma þar sem hún var ekki að raula. Tónlistin hefur alltaf verið hluti af henni. Í menntaskóla byrjaði hún að glíma við andlega vanlíðan og þá varð tónlistin meira en áhugamál, hún varð útrás og öryggisnet.

„Tónlist var eitt það helsta sem lét mér líða betur eða gat hjálpað við að koma út ákveðnum hugsunum,“ segir Bergdís.

Platan sem kom óvænt en á réttum tíma

Fyrsta lagið samdi hún árið 2018 og innan við ári síðar hafði hún samið fimm lög til viðbótar. Nokkrum árum síðar, árið 2023, bauð Stefán, náinn fjölskylduvinur sem hefur þekkt hana frá fæðingu, henni að koma í stúdíó sem hann leigir á Granda. Stefán hefur mikla reynslu úr tónlistarnámi og hljómsveitum, og bauð Bergdísi að taka upp öll lögin sem hún hafði samið.

Það sem átti að verða einföld upptaka sex laga breyttist fljótt í stærra ferli. Ný lög urðu til, neisti kviknaði, og úr varð platan „Dark Mind“ og segir Bergdís að Stefán hafi verið henni mikil hvatning og kennt henni margt þegar kemur að tónlist almennt

„Þetta var mjög frelsandi. Þetta var eins og að hverfa alveg inn í tilfinningarnar og hjálpaði mér mikið við að vinna úr þeim, “ segir Bergdís.

Platan sjálf er ekki bara tónlist hún er úrvinnsla, spegill tilfinninga og sambland af viðkvæmni og von.

„Ég vona að fólk finni fyrir blöndunni af vonleysi og von“

Einn lagatexti situr djúpt í henni:

„If I say it outloud it becomes the truth, and then there’s no way to hide my ugliness from you.”

Í lögunum má finna þá tilfinningu að vera ósýnilegur í eigin sársauka að enginn taki eftir því þegar maður er að drukkna. En með þessari plötu opnar Bergdís dyr að sínum innsta heimi og skapar tengingu fyrir aðra.

„Ég held að eitt af því sem ég lærði mest við að semja þessa plötu er að fegurð getur átt sér stað jafnvel í myrkrinu.“

Draumurinn: Tónleikar og tilgangur

Nú þegar platan er komin út segir Bergdís að sér líði betur en hún þorði að vona. Draumar hennar eru einfaldir en hjartahlýir. Að halda tónleika, lifa lífinu til fulls og deila tónlistinni með fólki sem finnur sig í henni.

„Draumurinn sem manneskja er bara að finna ánægju og lifa lífinu til hins fyllsta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

María Sigrún á batavegi en enn er töluvert eftir – „Ég hlakka svo til að geta beygt bæði hnén aftur“

María Sigrún á batavegi en enn er töluvert eftir – „Ég hlakka svo til að geta beygt bæði hnén aftur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Konur sem gruna karlinn um framhjáhald ráða mig til að leiða hann í gildru“

„Konur sem gruna karlinn um framhjáhald ráða mig til að leiða hann í gildru“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Iceland Eclipse Festival kynnir fyrstu nöfn – Menningar- og Vísindahátíð undir almyrkva á sólu

Iceland Eclipse Festival kynnir fyrstu nöfn – Menningar- og Vísindahátíð undir almyrkva á sólu
Fókus
Fyrir 6 dögum

O (Hringur) Best í Norður Makedóníu

O (Hringur) Best í Norður Makedóníu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Er Trump að takast að losna við frægustu spjallþáttastjórnendur Bandaríkjanna?

Er Trump að takast að losna við frægustu spjallþáttastjórnendur Bandaríkjanna?
Fókus
Fyrir 1 viku

Stóri dagurinn hjá Söru í dag – „Ég sagði næstum engum frá því“

Stóri dagurinn hjá Söru í dag – „Ég sagði næstum engum frá því“
Fókus
Fyrir 1 viku

„Það prumpar enginn glimmeri alla daga“

„Það prumpar enginn glimmeri alla daga“
Fókus
Fyrir 1 viku

Anna Guðný stendur sig vel í Mongólíu – Gerjaða hrossamjólkin smakkast eins og mysa og rennur vel niður

Anna Guðný stendur sig vel í Mongólíu – Gerjaða hrossamjólkin smakkast eins og mysa og rennur vel niður