Fyrirsætan Kendall Jenner, sú næstyngsta í Kardashian/Jenner systkinahópnum birti í gær af sér myndir á sundlaugarbakka íklædd bikiníi frá ítalska sundfataframleiðandanum Calzedonia.
Rúmar 2 milljónir fylgjenda hennar hafa látið sér líka við færsluna, sem er þó aðeins brotabrot af 287 milljónum fylgjenda Jenner.
Miðvikudaginn 11. júní pósaði hún í síðustu færslu einnig í bikiní.
View this post on Instagram
Jenner hefur þó sagt að henni finnist allt önnur stemning gera hana mest aðlaðandi.
„Þegar ég er nýkomin úr sturtu í náttfötunum og slaka á í herberginu mínu að horfa á einhvern kjánalegan Netflix þátt þá líður mér fallegastri,“ sagði hún við Harper’s Bazaar árið 2023. „Í mínu hreinasta ástandi!“