fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fókus

Nýjar íbúðir seljast verr en áður – En hvað kosta íbúðir í nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu?

Fókus
Fimmtudaginn 19. júní 2025 14:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar íbúðir samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS). Í skýrslunni segir: „Þó svo að hlutdeild nýbygginga í heildarframboði hafi lækkað frá áramótum þá hefur birgðatími nýrra íbúða hækkað undanfarið þar sem færri nýjar íbúðir hafa selst undanfarið en á sama tíma í fyrra. Birgðatími íbúða er tíminn sem tekur að selja núverandi framboð ef söluhraðinn helst óbreyttur frá síðasta mánuði.“

Tekið er fram að kaupsamningum á nýjum íbúðum hafi fækkað nokkuð frá því í fyrra en á fyrstu fjórum mánuðum ársins seldust 276 nýjar íbúðir samanborið við 460 á síðasta ári.

Af þessu tilefni ákvað Fókus að taka saman dæmi um hvað nýjar íbúðir kosta í dag á höfuðborgarsvæðinu.

Eirhöfði 7

Við Eirhöfða 7 eru íbúðir í nokkrum stigagöngum til sölu. Ódýrasta eignin er 40 fermetra stúdíóíbúð á 46,5 milljónir. Ódýrasta tveggja herbergja íbúðin er 41,1 fermetri og kostar 47,5 milljónir, en dýrasta tveggja herbergja er á 73,9 milljónir og er hún 80,9 fermetrar að stærð. Ódýrasta þriggja herbergja íbúðin 69,5 fermetrar og uppsett verð er 66 milljónir. Dýrasta eignin í Eirhöfða 7 er penthouse-íbúð sem er 190,7 fermetrar að stærð, fjögurra herbergja og verðmiðinn er 223 milljónir.

Valshlíð 1, 3 og 5

Í Vatnsmýrinni er hægt að kaupa nýjar íbúðir að Valshlíð 1, 3 og 5. Þar er ódýrasta eignin tveggja herbergja íbúð, 49,7 fermetrar að stærð og kostar 55,9 milljónir. Ódýrasta þriggja herbergja íbúðin er á 82,9 milljónir og er hún 71,9 fermetrar að stærð. Dýrasta eignin er fimm herbergja íbúð, 118,2 fermetrar að stærð og uppsett verð er 163,9 milljónir. .

Suðurhella 12

Þá erum við komin í Hafnarfjörðinn. Íbúðir í nýbyggingunni Suðurhella 12, sem auglýstar eru nú til sölu, eru á verðbilinu 66,9-81,9 milljónir. Sú ódýrasta er þriggja herbergja íbúð og 87,1 fermetri að stærð. Ódýrasta fjögurra herbergja íbúðin er á 79,9 milljónir og er 123,1 fermetri að stærð. Dýrasta eignin er sömuleiðis fjögurra herbergja og er eins 123,1 fermetri.

Hringhamar 33

Við Hringhamar 33 í Hafnarfirði er hægt að fá tveggja herbergja, 54,6 fermetra, íbúð á 53,9 milljónir. Þriggja herbergja íbúðir kosta frá 65,9 milljónum. Dýrasta eignin er fjögurra herbergja þakíbúð, 115,4 fermetrar að stærð og á 108,9 milljónir.

Vetrarbraut 2-4

Til sölu eru nokkrar íbúðir í nýju fjölbýlishúsi við golfvöll GKG í Garðabæ, Vetrarbraut 2-4. Þar eru dýrustu íbúðirnar auglýstar á 174,9 milljónir og eru þá um 172 fermetrar að stærð með þremur svefnherbergjum. Allra stærstu eignirnar eru ekki auglýstar á tilteknu verði heldur er óskað eftir tilboðum.

Á Vetrarbrautinni eru þó líka til sölu litlar og ódýrari íbúðir. Þær minnstu eru á 54,9 milljónir og eru tæpir 50 fermetrar að stærð. Ódýrustu þriggja herbergja íbúðirnar eru á 72,9 milljónir og eru 71,3 fermetrar að stærð. Ódýrasta fjögurra herbergja íbúðin er á 89,9 milljónir og er 93 fermetrar að stærð.

Eskiás 6

Íbúðir eru nú komnar í sölu í Eskiási 6 í Garðabæ. Þar er ódýrasta íbúðin þriggja herbergja, 82,7 fermetrar að stærð og uppsett verð er 74,9 milljónir. Á sama verði er hægt að fá aðra íbúð sömu stærðar sem er þó með þremur svefnherbergjum. Dýrasta eignin er fimm herbergja, 1040,8 fermetrar og kostar 95,9 milljónir.

Heklureitur

Íbúðir eru komnar í sölu á svokölluðum Heklureit, Laugavegi 168. Þar er ódýrust 53,4 fermetra tveggja herbergja íbúð á 59,9 milljónir, en dýrasta tveggja herbergja íbúðin er á 72,9 milljónir og er hún 64 fermetrar að stærð. Ódýrasta þriggja herbergja íbúðin er á 79,9 milljónir og er hún 77 fermetrar að stærð. Ef fólk vill stærri þriggja herbergja íbúð þá eru þó nokkrar til sölu sem eru á bilinu 95-162 fermetrar, en þá snarhækkar líka verðið en íbúðir á þessu stærðarbili kosta frá 98,9 milljónum upp í 234,9 milljónir. Örfáar eignir eru með þriðja svefnherbergið og kosta á bilinu 128,9-214,9 milljónir.

Borgartún 24

Við Borgartún 24 er að rísa 64 íbúða fjölbýlishús á 7 hæðum. Íbúðirnar eru á bilinu 53-192 fermetrar að stærð. Af þeim íbúðum sem nú er verið að auglýsa til sölu eru þær ódýrustu á 61,7 milljónir, en þær eru tveggja herbergja og um það bil 60 fermetrar að stærð. Dýrasta íbúðin sem er núna til sölu er þriggja herbergja og kostar 94,9 milljónir. Stærstu íbúðirnar eru allar seldar. .

Þetta er engan veginn tæmandi talning á nýbyggingum á höfuðborgarsvæðinu en gefur vísbendingar um verðlagninguna. Hvað ódýrustu eignirnar ræðir þá kostar fermetrinn um eða rúmlega milljón. Íbúðirnar eru litlar og flestar íbúðir eru með á bilinu 1-2 svefnherbergi. Dýrustu eignirnar eru þakíbúðir, lúxuseignir með verðmiða í samræmi.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?

Leyfðu Bandaríkin árásinni á Pearl Harbor að eiga sér stað?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi

Hús Múmínálfana er risið í Kjarnaskógi
Fókus
Fyrir 6 dögum

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur

Einstakur og fallegur Laufeyjar Múmínbolli fáanlegur
Fókus
Fyrir 1 viku

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma

Áhrifavaldur grét fyrir utan höfuðstöðvar TikTok – netverjar segja að þetta sé karma
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?
Fókus
Fyrir 1 viku

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu