fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025
Fókus

„Við höfðum trú á þessu strax í upphafi“

Fókus
Fimmtudaginn 22. ágúst 2024 12:39

Vitringarnir þrír.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það vakti mikla athygli þegar jólaauglýsing með þeim Friðriki Ómari, Eyþóri Inga og Jógvan Hansen birtist í kosningasjónvarpinu þann 1. júní síðastliðinn á RÚV en þeir kalla sig Vitringana þrjá og munu stíga saman á svið í desember í Hörpu og Hofi. Það seldist upp á allar fyrirhugaðar sýningar á mettíma í morgun en þeir félagar hafa nú bætt við fleiri sýningum vegna gríðarlegrar eftirspurnar.

„Maður rennur náttúrulega alltaf blint í sýningar þegar maður startar nýju verkefni en við höfðum trú á þessu strax í upphafi. Svo þarf bara dass af kjarki þor og kýla svo á það. Við ætlum að færa ykkur grín, grúv og gæsahúð,” segir Eyþór Ingi kátur í bragði.

„Jólamarkaðurinn þegar það kemur að tónleikum hefur verið að breytast síðastliðin ár og okkur fannst við geta sett saman hina fullkomnu skemmtun fyrir alla í desember. Við ætlum að skemmta fólki,” segir Jógvan Hansen.

„Mig langaði til að breyta til eftir jólatörnina mína í fyrra en ég hef verið með jólatónleika frá árinu 2015 sem heita „Heima um jólin.” Það var frábært ævintýri en mér fannst tími til komin að skipta um gír. Það lá í augum uppi fyrir mér að hefja samstarf við Eyþór og Jógvan. Við erum vinir og það verður gaman að deila þessum tíma og þessari upplifun með þeim,” segir Friðrik Ómar.

Aukasýningar er komnar í sölu bæði í Hörpu og Hofi og stendur forsalan yfir til miðnættis í kvöld á www.vitringarnir3.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Sögustund síðar, nú njótum við og fögnum“

Vikan á Instagram – „Sögustund síðar, nú njótum við og fögnum“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Peter Andre bregst við „ógeðslegum“ skilaboðum sem 18 ára dóttir hans fær

Peter Andre bregst við „ógeðslegum“ skilaboðum sem 18 ára dóttir hans fær