fbpx
Sunnudagur 15.júní 2025
Fókus

Svartur á leik verður að þríleik – Tvær nýjar myndir væntanlegar

Fókus
Fimmtudaginn 6. október 2022 12:06

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svartur á leik, ein svakalegasta spennumynd Íslandssögunnar, fer aftur í almennar sýningar á morgun 7. október í Smárabíó í tilefni af tíu ár eru liðin frá frumsýningu hennar og nú hefur Óskar Þór Axelsson leikstjóri tilkynnt það að Svartur á leik verður að þríleik – tvær nýjar myndir, sama teymið og gerði fyrri myndina, Óskar mun sjá um leikstjórn og handrit ásamt Stefáni Mána, framleiðslufyrirtækin Filmus og Zik Zak, innlend dreifing Sena og alþjóðleg dreifing Scanbox.

Framleiðendur eru áfram Andri Sveinsson, Arnar Knútsson, Heiðar Guðjónsson og Þórir Snær Sigurjónsson.

Fyrri myndin, sem er hugsuð sem „prequel“ eða undanfari gömlu myndarinnar, verður frumsýnd árið 2024 og sú seinni 2025 verður framhald og gerist í nútímanum.

Aðalkarakterinn verður áfram undirheimar Íslands. Fyrri myndin hefst þegar fyrsti dómur fyrir eiturlyfjasölu féll árið 1975 og inn í níunda áratuginn, tímabil pönksins þegar harðari efni byrjuðu að flæða til landsins. Seinni myndin verður birtingarmynd undirheima dagsins í dag þar sem magn eiturlyfja í umferð hefur margfaldast frá þeim tíma sem Svartur á leik fjallar um og erlendar glæpaklíkur hafa rutt sér til rúms og glæpastarfssemi orðin skipulögð, aftökur og harðari glæpir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?

Ragnhildur segir þetta þöglan skaðvald samtímans – Hversu mörg einkenni tengir þú við?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu

Segja að þetta sé „náttúrulegt Ozempic“ – Fæst í næstu matvörubúð en passaðu þig á þessu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“

Var að tala við foreldra sína í símann þegar hann hvarf sporlaust – „Ó, sjitt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla

Maríanna Pálsdóttir: Ungar stelpur að vakna klukkan 5 til að mála sig fyrir skóla
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn rifjar upp pínlegt atvik og biður Drífu afsökunar

Þorsteinn rifjar upp pínlegt atvik og biður Drífu afsökunar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990

Tónlistin er að styttast – Lög eru 48 sekúndum styttri en árið 1990
Fókus
Fyrir 4 dögum

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð

Orlando Bloom eyddi fúlgum fjár í umdeilda læknismeðferð