James Thomas hjá condoms.uk er kallaður sérfræðingur í samböndum og hann hefur deilt sjö spurningum sem hann segir að þurfi að vera spurðar á fyrsta stefnumóti.
Að komast að því hvernig einstaklingur slakar á getur gefið þér innsýn í persónuleika hans. Ef hann slakar á með því að lesa bók þá getur þú reiknað með því að honum finnist fínt að vera einn með sjálfum sér. Ef þeir nefna að þeim þyki best að slaka á með vinum eða fjölskyldu þá getur þú aftur á móti reiknað með því að þeim þyki betra að vera í kringum aðra heldur en einn.
Spurningin getur einnig gert það að verkum að þið finnið eitthvað sem þið eigið sameiginlegt.
Þessi spurning getur sýnt fram á hvað einstaklingur vill horfa á. Fólk á það til að tengja við skáldaðar persónur sem það vill líkjast svo það er ágætt að komast að því hvar þú hefur manneskjuna sem þú ert með á stefnumóti.
Þá getið þið einnig mælt með þáttum fyrir hvort annað og aftur fundið sameiginleg áhugamál.
Þessi spurning getur gefið upplýsingar um metnað einstaklings. Í gegnum lífið erum við alltaf að læra og stefna að því að bæta okkur. Ef einhver hefur enga löngun í að læra eitthvað þá getur það verið eitthvað sem er gott að vita strax – það er að segja ef það er ekki þinn bolli af te.
Þarna getið þið séð hvort að forgangsröðun ykkar passi saman.
Þetta getur sýnt fram á hvort að einstaklingur sé hæfileikaríkur í eldhúsinu eða ekki. Ef þeir viðurkenna að þeir eldi ekki þá getið þið nýtt það til að læra að elda eitthvað saman á framtíðar stefnumótum og ef þeir hafa einhvern mat sem þeir elska að elda þá gæti þessi spurning landað þér boði í heimaeldaðan mat.
Þarna getið þið líka hafið samræður um hvernig mat þið borðið og hvort þið séuð með einhver ofnæmi.
Þessi spurning gæti landað samræðunum á nokkra ólíka staði. Þetta gæti fært húmor í samræðurnar eða bent til mikilvægra persónueinkenna á borð við kærleik og samkennd. Ef einstaklingur vill eyða sínum síðustu stundum með fjölskyldunni til dæmis.
Þetta hjálpar þér að fá tilfinningu fyrir persónuleika einstaklingsins og innsýn yfir í það hvort þeir séu hvatvísir eða skipulagðir.
Þetta er góð leið til að brjóta ísinn. Spurningin er mjög opin og leyfir þeim sem svarar henni að meta hvað þeim finnst „best“. Þetta sýnir fram á það hvort þeir kunni að meta litlu hlutina í lífinu eða hvort þeir meti frekar stóru hlutina.
Þetta er skemmtileg spurning sem getur hjálpað samtali að flæða áfram. Þessi spurning gefur færi á að segja góða sögu fyrir báða aðila og svörin gætu verið eitthvað sem stæði upp úr á stefnumótinu.
Svo nú er ekki um annað að ræða en að leggja þessar spurningar á minnið fyrir næsta stefnumót.
James segir „Ef hlutirnir eru ekki að ganga upp, ekki örvænta. Ef þið eruð ekki að smella saman þá eru allar líkur á því að hinn aðilinn hafi líka tekið eftir því. Það er ekkert skammarlegt við það að vera hreinskilinn en ekki flýja vettvang og ekki fara að hegða þér öðruvísi. Ef maturinn eða drykkirnir eru búnir þá getur þú einfaldlega óskað eftir reikningnum, sagt hinum hver staðan er og svo sagt þetta gott.“