fbpx
Fimmtudagur 22.janúar 2026
Eyjan

Nýir forstöðumenn Krónunnar 

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 26. júní 2024 16:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum gífurlega ánægð að fá til liðs við okkur þessa öflugu og drífandi stjórnendur og það á mikilvægum tímum þar sem Krónan er í miklum vexti og spennandi verkefni framundan. Þeirra reynsla og þekking mun efla okkur og styrkja enn frekar á okkar vegferð að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með framþróun og jákvæða upplifun að leiðarljósi,“

segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, en öflugt teymi Krónunnar hefur nú styrkst enn frekar með fjórum nýjum forstöðumönnum, eins og segir í tilkynningu. 

Freyja Leópoldsdóttir, forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni, Einar Þór Einarsson, framkvæmdastjóri framleiðslufyrirtækisins Icelandic Food Company, Bjarki Jónsson, forstöðumaður aðfangastýringar, og Ásta Bærings forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Krónunni.

Ásta Bærings hefur verið ráðin forstöðumaður Mannauðs og menningar hjá Krónunni. Ásta kemur frá Þekkingu þar sem hún starfaði sem mannauðsstjóri frá árinu 2019. Hún hefur umfangsmikla reynslu á sviði umbreytinga ferla og vinnulags og það með stafrænar lausnir að leiðarljósi. Ásta er með tvöfalda mastersgráðu frá Háskólanum í Reykjavík, annars vegar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og hins vegar upplýsingastjórnun. 

Freyja Leópoldsdóttir er nýr forstöðumaður Markaðsmála og sjálfbærni hjá Krónunni. Freyja kemur frá S4S, þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðsmála frá árinu 2019. Fyrir þann tíma var Freyja markaðsstjóri Bílaumboðsins Öskju frá árinu 2012. Freyja er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík ásamt B.A. gráðu í alþjóðlegri sölu- og markaðsfræðum frá Business Academy Southwest í Danmörku. 

Bjarki Jónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Aðfangastýringar hjá Krónunni. Bjarki á sér langa sögu hjá Krónunni en hann hóf sinn feril í kjötafgreiðslunni í Nóatúni árið 2006. Hann réð sig síðar til WOW air sem flugliði en hóf aftur störf hjá Krónunni árið 2019 og hefur sinnt margvíslegum verkefnum síðan þá á sviði aðfangastýringar, kerfisinnleiðinga og umbótaverkefna. Bjarki er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. 

Einar Þór Einarsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra framleiðslufyrirtækisins Icelandic Food Company sem er dótturfyrirtæki Krónunnar. Frá árinu 2019 starfaði Einar Þór hjá Icelandair sem deildarstjóri á flugrekstrarsviði eftir að hafa verið forstöðumaður á fríverslunarsviði WOW Air frá 2018. Einnig hefur Einar mikla reynslu á fjármálamarkaði, meðal annars sem innlánastjóri og í fjárstýringu hjá Kaupþingi, Arion banka og Kviku frá 2007 til 2018. Einar Þór er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og B.A. gráðu í fjármálum frá Eckerd College í Flórída. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Alþjóðadagur AHC – Sjaldgæfur sjúkdómur og óvenjulegt alþjóðlegt samstarf íslenskra samtaka

Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar: Alþjóðadagur AHC – Sjaldgæfur sjúkdómur og óvenjulegt alþjóðlegt samstarf íslenskra samtaka
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum allar þrjár samstiga – næsta skref er að treysta þjóðinni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum allar þrjár samstiga – næsta skref er að treysta þjóðinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin

Óttar Guðmundsson skrifar: Bílaumferðin
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Les ekki leiðara Morgunblaðsins – blaðið komið langt frá Matthíasi og Styrmi og ekki hægt að elta svoleiðis vitleysu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Les ekki leiðara Morgunblaðsins – blaðið komið langt frá Matthíasi og Styrmi og ekki hægt að elta svoleiðis vitleysu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?

Orðið á götunni: Pólitísk afturganga fer á stjá – var skynsamlegt af VG að leiða Bjarna Ben til valda eða öfugt?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Er Svarta stöðin komin aftur?

Thomas Möller skrifar: Er Svarta stöðin komin aftur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Gullvægar hendingar langt úr austri

Björn Jón skrifar: Gullvægar hendingar langt úr austri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Skil ekki hvernig það datt ofan í popúlista að hafna staðreyndum

Magnús Árni Skjöld Magnússon: Skil ekki hvernig það datt ofan í popúlista að hafna staðreyndum