Ný ábendingagátt fór í loftið á vef Reykjanesbæjar nú á dögunum en um er að ræða eina einingu í gæðakerfi sveitarfélagsins sem hefur verið í innleiðingu seinustu ár. Gæðakerfi Reykjanesbæjar er CCQ frá Origo eins og segir í tilkynningu.
Ábendingagáttin er notendavænni en fyrri lausnir og auðveldari úrlausnar fyrir starfsfólk. Ný ábendingagátt hentar öllum snjalltækjum og er því ekkert mál að grípa símann og senda ábendingu með einföldum hætti. Hægt er að senda myndir með ábendingunni og möguleiki er að senda staðsetningu á korti ef það á við. Öflugt bakendakerfi gerir það að verkum að starfsfólk getur brugðist hratt við ábendingum og komið þeim í réttan farveg. Kerfið sýnir einnig hvar ábendingin er stödd innan stjórnsýslunnar sem gerir eftirfylgni markvissari en áður en mikilvægt er að gott gagnsæi sé í stjórnsýslunni. Fögnum ábendingum „Mikilvægt er að taka öllum ábendingum fagnandi, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar og horfa á þær sem tækifæri til úrbóta. Reykjanesbær hefur unnið hörðum höndum að því seinustu mánuði við að finna leiðir til þess að einfalda ábendingagáttina hjá sveitarfélaginu og er því ánægjulegt að þetta skref hafi verið tekið. Tekið er fagnandi á móti öllum ábendingum,“ segir Aðalheiður J. Óskarsdóttir, gæðastjóri Reykjanesbæjar. ,,Með virkri ábendingagátt er Reykjanesbær að bjóða upp á virkt samtal um málefni líðandi stundar og örugga úrvinnslu á þeim. Reykjanesbær er að sýna frábært fordæmi með því hugarfari starfsfólks að bjóða ábendingar velkomnar,“ segir Maria Hedman, vörustjóri CCQ hjá Origo.