Borgarráð samþykkti á fundi sínum 28. júní tillögu að rammaskipulagi fyrir byggð í Nýja Skerjafirði. Í tillögunni er gert ráð fyrir byggð fyrir um 1.200 íbúðir, nýjum skóla, verslun og þjónustu.
Rammaskipulagið tekur til landsvæðis sem er við enda litlu flugbrautarinnar svokölluðu sem hefur verið lokað. Svæðið liggur að núverandi byggð í Skerjafirði og afmarkast af götunni Skeljanesi til vesturs en af öryggissvæði Reykjavíkurflugvallar til norðurs og austurs. Við suðurenda byggðarinnar er síðan strandlengja Skerjafjarðar. Rammaskipulaginu er ætlað að vera leiðarljós varðandi uppbyggingu þessa nýja hverfis á þróunarreit (Þ5) sem er skilgreindur í Aðalaskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Í framhaldi af samþykkt skipulagsins verður hafist handa við deiliskipulag á einstökum reitum svæðisins en í kjölfar þess hefst uppbygging.
Tölvuteiknuð mynd af grænum ás í miðri byggðinni. Mynd: Ask arkitektar.
Rammaskipulagið gerir ráð fyrir fjölbreyttum húsagerðum og ríkulegum, grænum almenningsrýmum sem hönnuð verða út frá sólaráttum og skjóli. Hugað verður að félagslegri blöndun á svæðinu og hafa stúdentar og Bjarg, byggingarfélag verkalýðshreyfingarinnar þegar fengið vilyrði fyrir lóðum í hinni nýju byggð.
Vanda á hönnun og gerð götugagna, lýsingar, gróðurs og yfirborðsefna. Gert er ráð fyrir leiksvæðum og dvalarsvæðum í inngörðum en þéttleiki byggðar verður nokkuð mikill á svæðinu og er því talið mikilvægt að almenningsrýmin séu vel hönnuð og góð. Fjölmörg torg og áningarsvæði verða á svæðinu. Gert er ráð fyrir að flugsögunnar verði minnst á svæðinu m.a. með svokölluðu „flugtorgi“. G
Góð aðstaða verður fyrir ýmis konar sportbáta og seglskútur á svæðinu og er tiltekið að byggja eigi upp góða aðstöðu fyrir siglingaíþróttina á austurhluta strandarinnar. Öll strandlengjan þarna er sólrík og hentar því vel til dvalar, útivistar, sjóbaða og siglinga.
Notast verður við blágrænar ofanvatnslausnir í byggingum á svæðinu og skulu 60% allra þaka verða græn en það hægir á rennsli ofanvatns. Skipulagður er grænn miðás sem liggur í átt að miðlægu torgi þar sem gert er ráð fyrir biðstöð almenningssamgangna. Í þessu græna belti verður net leikvalla og áfangastaða.
Hugsað er fyrir tengingu hverfisins við áframhaldandi uppbyggingu í Vatnsmýri þegar flugvöllurinn víkur þaðan.
Þá er gert ráð fyrir tengingu almenningssamgangna við Kársnes í Kópavogi með byggingu brúar yfir Fossvog fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur.
Tölvuteiknuð mynd af strandlengjunni. Þar eru miklir möguleikar til útivistar, siglinga og sjóbaða. Athugið að svona myndir sýna alls ekki
lokaútlit bygginga á svæðinu. Mynd: Ask Arkitektar.
Megináherslur rammaskipulags fyrir Skerjafjörð eru eftirfarandi.
Torg og almenningsrými verða mörg í nýja Skerjafirði. Tölvuteiknuð mynd: Ask Arkitektar.
Sérstaklega var hugað að eftirfarandi atriðum við vinnslu rammaskipulagsins sem ASK arkitektar unnu.