Nú er verslunarmannahelgin framundan og ekki ólíklegt að einhver finni fyrir þynnku á næstu dögum. MMR kannaði því hvaða ráð Íslendingar eru líklegastir til að nota til að draga úr og sefa eymdina. Könnunin sýndi að þriðjungur Íslendinga annað hvort drukku aldrei eða urðu aldrei þunnir. Langvinsælasta aðferðin til að losna við þynnkuna var þó að drekka vatn, eða 40%. Þar á eftir notuðu 24% og 21% Íslendinga verkjalyf eða borðuðu feitan mat. Enn aðrir sögðust drekka íþróttadrykki, 14% eða kaffi, 9%, til að losna við þynnkuna. Einungis 3% svarenda reyndust svo djarfir að drekka meira áfengi eða að fá sér svokallaðan afréttara til að losna við timburmennina og 13% svarenda gerðu einfaldlega ekkert til að losna við þá.
Ef munur var svo skoðaður eftir lýðfræðihópum mátti sjá að fleiri karlar, 18%, en konur, 9%, voru líklegri til að leyfa ferlinu að eiga sinn gang og gera ekkert við þynnkunni. Hvað varðar aldur þó kom í ljós að því eldri sem svarendur voru, því ólíklegri voru þeir til að drekka vatn, taka verkjalyf, borða feitan mat og drekka íþróttadrykki og kaffi til að losna við þynnku. Þannig sögðust 58% þeirra sem voru 18 til 29 ára drekka vatn til að losna við þynnkuna, samanborið við einungis 12% þeirra sem voru 68 ára og eldri. Aftur á móti voru einstaklingar í síðarnefnda aldurshópnum líklegastir til að drekka aldrei eða verða aldrei þunnir, eða 59%.
Stuðningsmenn Vinstri grænna drekka minnst eða verða aldrei þunnir
Námsmenn í aldurshópnum 18 til 29 ára voru jafnframt sá hópur sem líklegastur var til að segjast drekka orkudrykki, drekka kaffi og borða ristabrauð til að losna við þynnkuna. Eins var háskólamenntað fólk líklegra en fólk sem lokið hafði grunnskólamenntun eða framhaldsskólamenntun til að segjast drekka vatn, 48%, taka verkjalyf, 31% og borða feitan mat, 26%, til að losna við þynnku.
Þegar til er mið af stuðningi við stjórnmálaflokka kom í ljós að stuðningsfólk Vinstri grænna var líklegasti hópurinn til að segjast aldrei drekka eða verða aldrei þunnt, eða 40%. Stuðningsfólk Viðreisnar var aftur á móti ólíklegasti hópurinn til að gera slíkt hið sama, eða 25% en sá hópur var líklegastur til að segjast drekka vatn, 52%, og taka verkjalyf, 36%, til lausnar við þynnku. 26% Pírata drekkur aldrei eða verður aldrei þunnur, athygli vekur að Píratar voru langlíklegastir til að borða feitan mat til að losna við þynnku, eða 32%. Til samanburðar má geta að Framsóknarmenn gera það í aðeins 7% tilfella og Sjálfstæðismenn í 19% tilfella.
Könnunin var gerð dagana 18.-21. júlí 2017, spurðir voru 909 einstaklingar, 18 ára og eldri.