fbpx
Sunnudagur 17.ágúst 2025
Eyjan

Ógeðslegt að afla fylgis með að fullyrða að aðstoð við hælisleitendur sé á kostnað þeirra sem eiga erfitt

Ari Brynjólfsson
Fimmtudaginn 3. ágúst 2017 10:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar. Mynd/Sigtryggur Ari

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar segir það beinlínis ógeðslegt ef stjórnmálamenn reyni að afla sér fylgis með því að fullyrða að aðstoð við flóttamenn og hælisleitendur sé á kostnað þeirra Íslendinga sem eiga erfitt. Samfylkingin muni ekki taka þátt í slíku andæfa slíkum málflutningi kröftuglega.

Segir Logi í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag að mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnmála sé að auka jöfnuð landsmanna, eyða fátækt og bæta kjör þeirra sem standa höllum fæti:

Yfir sex þúsund íslensk börn búa við fátækt. Það gera margir öryrkjar einnig og hafa ekki uppskorið í góðærinu síðustu ár. Aldraðir lifa sumir við nagandi óöryggi og skort. Ungt fólk hrekst milli íbúða á ótryggum og gróðavæddum leigumarkaði, hefur litla möguleika á að kaupa húsnæði og sér jafnvel takmarkaða framtíð hér á landi,

segir Logi. Segir hann að virkja þurfi samkennd og samhjálp og ná víðtækri sátt um samneyslu sem miði að því að jafna lífskjörin. Hækka þurfi lægstu launin, tryggja öryrkjum og öldruðum ásættanlegan lífeyri og gera þeim kleift að afla aukatekna, án þess að lífeyrir sé jafnharðan skertur. Þá þurfi að auka barna- og húsnæðisstyrk til að ungt fjölskyldufólk fari vel nestað út í lífið:

Um þetta eru margir Íslendingar sem betur fer sammála en því miður ber nú á nokkuð nýjum og heldur ömurlegum tón í umræðunni. Þær raddir verða sífellt háværari í fjölmiðlum, á samfélagsmiðlum og jafnvel hjá stjórnmálamönnum, sem fullyrða að aðstoð við flóttamenn og hælisleitendur sé á kostnað þeirra Íslendinga sem eiga erfitt. Það er ósmekklegt að ýja órökstutt að því að einn hópur sem á um sárt að binda beri ábyrgð á öðrum í vondri stöðu. Og það er beinlínis ógeðslegt ef sá málflutningur er notaður til að afla stjórnmálaflokkum fylgis. Samfylkingin mun ekki taka þátt í slíku og andæfa honum kröftuglega.

Logi segir svo að lokum:

Ísland er ríkt land og við getum vel bætt aðstæður Íslendinga sem höllum fæti standa, um leið og við öxlum sjálfsagða ábyrgð: Að rétta þeim hjálparhönd, sem hingað leita, úr ömurlegum aðstæðum og af sárri neyð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“