Kristín Þorsteinsdóttir aðalritstjóri 365 segir að miðað við þá staðreynd að Íslendingar séu meðal feitustu þjóða Evrópu þá sé viðbúið að senn komi að skuldadögum. Í leiðara Fréttablaðsins í dag vitnar Kristín í Guðmund Jóhannsson lækni sem sagði í viðtali fyrr á þessu ári að offita væri ekki vandamál ein og sér, heldur miklu frekar lífsstílssjúkdómarnir sem henni fylgja. Uppgjörin framundan snerti ekki aðeins þá sem glíma við sjúkdómana og aðstandendur þeirra, heldur hvert einasta mannsbarn í landinu sem stendur undir heilbrigðis- og velferðarkerfinu gegnum sínar skattgreiðslur:
Varla þarf að leita lengi á Íslandi til að sjá að matarvenjum okkar er stórlega ábótavant. Margir hafa kannski tekið eftir því að við hringveginn er nánast ekkert annað í boði en sykraðir gosdrykkir, unnar kjötvörur og sælgæti í massavís. Er nema von að útlenda vini sem hingað rata reki í rogastans?,
segir Kristín. Það sama megi segja um Landspítalann:
Furðulegt er að verða vitni að því að sjúklingar, sem fá heimsklassa þjónustu frá læknum og öðru starfsfólki, er síðan réttur matarbakki sem kannski þætti boðlegur á þorrablóti, en ætti alls ekki að rata á heilbrigðisstofnun. Sömuleiðis er athyglisvert að fylgjast með Costco grúppunni frægu á Facebook, en þar virðist lagt upp úr því að fá sem mest á sem lægstu verði.
Kannski ætti fólk að hugsa sig tvisvar um? Sumt það sem ódýrast er í krónum talið er dýru verði keypt þegar upp er staðið.
Segir Kristín mataræði og hreyfingu vera uppeldisleg atriði, foreldrar beri ábyrgð á að temja börnunum sínum hollt mataræði og hvetja þau til að hreyfa sig. Fólki sé þó vorkunn þar sem slíkt kosti mikla peninga:
Þekkt er erlendis að fátækt fólk sækir í ríkari mæli á skyndibitastaði á borð við McDonalds eða KFC. Það er ódýrasti kosturinn. Afleiðingin er að tekjulægsta fólkið glímir frekar við offitu og fylgikvilla hennar.
Þarna sé tækifæri fyrir ríkisvaldið að stíga inn í og lækka skatta á hollari fæða og niðurgreiða skipulega hreyfingu:
Mótsögnin er sú að þótt við Íslendingar séum meðal feitustu Evrópuþjóða erum við líka dugleg að hreyfa okkur. Sumarið er tími hjólamóta, víðavangshlaupa og íþróttaviðburða af ýmsu tagi. Ekki þarf heldur að minna á allt það frábæra afreksíþróttafólk sem héðan kemur. Eitthvað gerum við rétt.
Þegar að lífsstílssjúkdómum kemur er það einungis einstaklingurinn sem getur borið ábyrgð á sinni velferð. En ríkið getur togað í spotta þar sem það á við. Það á að stuðla að því að við borðum hollt og hreyfum okkur.