fbpx
Fimmtudagur 14.ágúst 2025
Eyjan

Hanna Katrín svarar Sigurði Inga: Fellur í hefðbundna gryfju

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 16. ágúst 2017 13:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins og Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar. Samsett mynd/DV

„Á sama tíma og það er mikilvægt að finna færar leiðir til bregðast við þeim vanda sem sauðfjárbændur eiga nú í þarf að horfa til framtíðar. Talsverð umræða hefur verið um nýja búvörusamninginn og þó að ekki sé hægt að leita skýringa á núverandi ástandi í þeim tiltekna samningi, er nauðsynlegt að við endurskoðun hans sé litið til stöðunnar.“

Þetta segir Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar í pistli sem hún skrifar í Fréttablaðið í dag, þar svarar hún Sigurði Inga Jóhannssyni formanni Framsóknarflokksins sem sagði í gær það vera sorglegt hve litla þekkingu ráðherrar Viðreisnar hefðu á landbúnaði. Sagðist Sigurður Ingi gruna að hátt matvælaverð mætti frekar rekja til álagningu í gengum milliliði frekar en háir tollar.

Sjá einnig: „Getur verið að ráðherrar Viðreisnar séu í hagsmunagæslu fyrir fjármálaöfl og heildsala?“

Hanna Katrín segir það hins vegar mæta furðu að í sauðfjárhluta búvörusamningsins séu engin úrræði til að mæta sveiflum á mörkuðum og gengi í útflutningi á kjöti. Það sé eitt dæmi um atriði sem þurfi að breyta við endurskoðun búvörusamninga:

Hvað bráðavanda greinarinnar varðar mun að sjálfsögðu ekki standa á stjórnvöldum að bregðast við innan þess ramma sem samningar og fjárheimildir leyfa. Slíkar lausnir þurfa þó að vera hugsaðar til langs tíma og þær mega ekki vera í þversögn við aðra samninga milli bænda og ríkis. Mistök eru til að læra af þeim og það má draga mikinn lærdóm af þeirri stöðu sem nú er enn og aftur komin upp hjá einni mikilvægustu atvinnugrein þjóðarinnar,

segir Hanna Katrín. Það sé verðug áskorun fyrir alla sem komi að málinu að forðast að festast í gömlum hjólförum:

Hugmyndasmiðir núverandi kerfis þyrftu að nýta sér uppbyggilega gagnrýni í stað þess að falla í hefðbundnar gryfjur á borð við þá sem formaður Framsóknarflokksins fellur í þegar hann dylgjar um að Viðreisn sé í hagsmunagæslu fyrir fjármagnsöfl og heildsala af því að flokkurinn boðar breytingar í þessum mikilvægu málum. Sameiginlegt verkefni fram undan er að tryggja hagsmuni bænda og neytenda til lengi tíma. Er ekki vænlegast að nota kraftana óskerta í það?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 5 dögum

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“

Kolla hlustaði á tvo áhyggjufulla Sjálfstæðismenn tala um flokkinn sinn – „Voru þeir að gera nokkuð sem þeim féll greinilega þungt“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslan við breytingar er íhaldinu ofviða
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“

Össur segir Guðlaug Þór hafa farið viljandi með rangt mál – „Bókstaflega skrældur í tætlur eins og hýði af gamalli kartöflu“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Yrkir byggir upp í Urriðaholti

Yrkir byggir upp í Urriðaholti