„Í einhverju mesta góðæri sögunnar – er okkur tjáð – þá sitjum við uppi með ríkisstjórn sem aðeins þrjár manneskjur af hverjum tíu styðja.
Hvern skollann á það að þýða, ef ég má spyrja hreint út?“
Að þessu spyr Illugi Jökulsson rithöfundur í pistli sem hann skrifar á Stundina í dag. Líkt og Eyjan hefur greint frá eru engin dæmi um að ríkisstjórn sem starfað hefur í einungis hálft ár mælist með jafn lítinn stuðning en samkvæmt nýjustu könnun MMR styðja 30,3% þjóðarinnar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Illugi segir að allir viti að góðærið sé ekki Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra að þakka heldur erlendum ferðamönnum:
Í öðru lagi er það vegna þess að fólk er ekki fífl. Fólk – eða að minnsta kosti þessi sjö rauðu! – gerir sér grein fyrir því að þótt Bjarni Benediktsson hafi reynst hafa níu pólitísk líf líkt og kötturinn, þá gerir það hann ekki að heiðarlegum stjórnmálamanni,
segir Illugi. Segir hann að Bjarni muni aldrei losna við Vafningsmálið, Borgunarhneykslið né bankareikninginn á Seychelles-eyjum. Kjósendur Viðreisnar og Bjartrar framtíðar séu einnig reiðir:
Viðreisn gaf sig út fyrir að vera hinn nýi siðlegi flokkur frjálslyndra hægrimanna, flokkur sem myndi ævinlega standa við orð sín, enda var hann víst stofnaður sérstaklega vegna gremju margra Sjálfstæðismanna yfir því hve illa Bjarna hefur ævinlega gengið að standa við orð sín.
En ekkert stendur eftir af prati Viðreisnar. Þessi flokkur var greinilega allan tímann eins-manns-sirkus Benedikts Jóhannessonar, aðferð hans til að gera sig gildandi í fermingarveislum Engeyjarættarinnar.
Illugi segir Bjarta framtíð nánast efni í Spaugstofuna:
Um Bjarta framtíð þarf ekki að ræða. Það er nánast Spaugstofuefni að stofna stjórnmálaflokk utan um slagorðið „ekkert fúsk“ og styðja svo tómt fúsk og undirferli – og ekkert annað.