fbpx
Fimmtudagur 21.ágúst 2025
Eyjan

Biskup Íslands tekur undir með Semu Erlu og biðlar til stjórnvalda: „Við erum öll gestir á hótel jörð“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 26. júlí 2017 10:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands og feðginin Abrahim og Hanyie Maleki. Samsett mynd/DV/Stundin/Þorgeir Helgason

„Margir fá ekki lifað í fæðingarlandi sínu vegna ófriðar, óréttlætis eða af öðrum ástæðum. Sumir þeirra hafa leitað til Íslands og beðið um leyfi til að lifa hér og starfa. Saga þeirra er jafnan átakanleg, þar sem fólk hefur flúið hræðilegar aðstæður og valið lífið fram yfir miklar hörmungar og hættur.“

Þetta segir Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands í grein sem hún skrifar í Fréttablaðið dag, þar biður hún stjórnvöld að leyfa afgönsku feðginunum Abrahim Maleki og ellefu ára gamalli dóttur hans Hanyie að setjast að á Íslandi. Sema Erla Serdar og samtök hennar, Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi, hafa barist fyrir því að feðginin fái áheyn yfirvalda.

Séra Agnes segir sögu feðginanna átakanlega:

Abrahim er Afgani en fjölskylda hans flúði til Írans, þar sem dóttir hans fæddist. Hún hefur aldrei búið í landi föður síns og á þar enga fjölskyldu. Móðirin yfirgaf þau fyrir tíu árum og barnið hefur engar minningar um hana. Hingað eru feðginin komin í þeirri von að fá alþjóðlega vernd, eftir að hafa verið á flótta um langt skeið. Líkt og aðrir feður vill Abrahim barni sínu aðeins það besta, hann vill að dóttir hans alist upp í friði og öryggi, fái að ganga menntaveginn og verða hamingjusöm í landi sem virðir mannréttindi. Þar sem mannúð og manngæska er innbyggð í þjóðarsálina.

Vitnar hún í Davíðssálma þar sem segir „Ég er gestur á jörðinni“ og ljóð Tómas Guðmundssonar:

„Við erum gestir og hótel okkar er jörðin“

Önnur tilvitnunin er rituð fyrir Kristsburð, hin á síðustu öld. Önnur fyrir botni Miðjarðarhafs, hin á eyju norður í höfum. Báðar eru jafn sannar, þóttir gestirnir svokölluðu séu misheppnir með fæðingarstað,

segir séra Agnes. Þar að auki hafi frelsarinn sagt: „Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig.“ Biðlar hún því til stjórnvalda um að leyfa feðginunum að gera Ísland að sínu framtíðarheimili:

Ég bið þau sem eru í því vandasama hlutverki að taka ákvarðanir um framtíð þeirra sem hingað leita í neyð sinni, að leyfa Abrahim og Hanyie að eiga hér framtíðarheimili. Við erum öll gestir á hótel jörð. Það hlýtur að vera laust pláss á hótel Íslandi fyrir þau. Sýnum mannúð og tryggjum þeim örugga framtíð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi

Sigmundur Ernir skrifar: Svona er pólitíkin að breytast á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Könnun – Ísland og Evrópusambandið

Könnun – Ísland og Evrópusambandið