fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Ingvar Smári gefur kost á sér til formennsku í SUS

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 24. júlí 2017 09:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andri Steinn Hilmarsson, Ingvar Smári Birgisson og Sigríður Erla Sturludóttir.

Ingvar Smári Birgisson gefur kost á sér til formennsku Sambands ungra Sjálfstæðismanna, SUS, á 44. þingi sambandsins sem fer fram á Eskifirði dagana 8. til 10. september næstkomandi.

Ingvar er á 24 ára gamall og uppalinn í Reykjavík. Hann starfar hjá Nordik lögfræðiþjónustu en hann lauk BA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og stundar nú meistaranám í lögfræði við sama skóla. Hann lauk stúdentsprófi af fornmálabraut Menntaskólans í Reykjavík árið 2013. Ingvar starfaði áður sem blaðamaður á Morgunblaðinu.

Ingvar Smári Birgisson.

Ingvar hefur setið í stjórn SUS frá árinu 2013 og verið afar virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins um árabil. Þá gegndi hann formennsku í Heimdalli, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, árin 2013 til 2015 en Heimdallur er stærsta aðildarfélag SUS. Ingvar hefur einnig verið virkur í starfi alþjóðasamtakanna Students For Liberty og skipulagt fjölmargar alþjóðlegar ráðstefnur á þeirra vegum.

Ingvar segist ætla að leggja áherslu á að SUS sé mótandi afl í pólitískri umræðu og veiti jafnframt forystu Sjálfstæðisflokksins og kjörnum fulltrúum verðugt aðhald í störfum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn byggi á frelsi einstaklingsins til viðskipta og athafna og ekki megi missa sjónar af þeim grunngildum í pólitísku amstri:

Ég ætla að efla starf ungra sjálfstæðismanna enn frekar um landið allt en ég tel virka þátttöku ungs fólks að stjórnamálastarfi skipta sköpum fyrir framtíðina. Í því skyni vil ég tryggja ungu fólki brautargengi í komandi sveitarstjórnarkosningum innan Sjálfstæðisflokksins,

segir Ingvar. Sambandsþing SUS eru haldin á tveggja ára fresti og því kosið til tveggja ára í senn. Laufey Rún Ketilsdóttir, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og núverandi formaður SUS, sækist ekki eftir endurkjöri.

Andri Steinn Hilmarsson býður sig fram til varaformanns Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Andri Steinn er 24 ára gamall úr Kópavogi. Hann starfar sem blaðamaður og er varabæjarfulltrúi í Kópavogi. Andri stundar nám í hagfræði við Háskóla Íslands og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 2013. Hann var kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum og gegndi formennsku í Tý, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Kópavogi, árin 2013 til 2015. Þá hefur hann gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og situr nú í umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogsbæjar en var áður formaður frístunda- og forvarnarnefndar bæjarins.

Sigríður Erla Sturludóttir býður sig fram til 2. varaformanns Sambands ungra Sjálfstæðismanna. Sigríður Erla er 25 ára gömul og uppalin í Stykkishólmi þar sem hún býr enn. Hún starfar sem flugfreyja hjá Icelandair og stundar nám í lögfræði við Háskóla Íslands. Sigríður lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 2012 en meðfram námi hefur hún einnig starfað sem aðstoðarkona í NPA, notendastýrðri persónulegri aðstoð, hjá ungri konu með fötlun.

Sigríður Erla gegndi formennsku í Orator, félagi laganema við Háskóla Íslands, á síðasta ári og var forseti Nemendafélags Verslunarskóla Íslands árin 2011-2012. Hún hefur einnig verið virki í starfi Sjálfstæðisflokksins í gegnum árin og sat í stjórn SUS árin 2013-2015 og gegnir nú formennsku í Sif, félagi ungra Sjálfstæðismanna í Stykkishólmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Gamalkunnur söngur bankanna ómar – þarf kannski bara að breyta leikreglunum?

Orðið á götunni: Gamalkunnur söngur bankanna ómar – þarf kannski bara að breyta leikreglunum?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing

Orðið á götunni: Tvær konur berjast um fjöregg Framsóknar – styttist í flokksþing
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?