Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land næstkomandi sunnudag. Af því tilefni hefur Verkalýðsfélag Akraness birti greiningu á launamálum sjómanna og þróun þeirra undanfarin ár á vefsíðu sinni með yfirskriftinni „Laun sjómanna lækkað um 50% á tveimur árum!“ og eru þau að mati félagsins „í frjálsu falli“. Formaður VLFA, Vilhjálmur Birgisson hefur að sögn kannað afleiðingar lækkandi fiskverðs og styrkingar íslensku krónunnar á skipverja tveggja skipa og er tekjufallið að hans sögn „gríðarlegt“.
Vilhjálmur hefur skoðað afkomu skipverja Helgu Maríu AK og Ásbjörns ER miðað við aflamagn síðasta árs. Tekjufallið er að hans sögn milli 5 til 6 milljónir á ársgrundvelli mið við 192 róðrardaga, eða 50%.
Þetta sést vel á samanburði á fiskverði í maí 2015 og maí 2017 miðað við aflamagn ársins 2016, en þá kemur í ljós að aflaverðmætið t.d. hjá Helgu Maríu lækkar úr 1,3 milljörðum í 855 milljónir eða um rúmlega 425 milljónir, en hér er lækkun á aflaverðmæti sem nemur um 50%,
segir á vefsíðu VFLA.
Afleiðingar af sífellt sterkari gengi krónunnar og lækkunar afurðaverðs eru meðal annars þetta tekjutap sjómannastéttarinnar. Þetta tekjutap hefur áhrif víðar enda minnka skatttekjur ríkis og sveitarfélaga og margt fleira.
Það er ljóst að sjómannadagurinn verður haldinn í skugga gríðarlegs tekjufalls íslenskra sjómanna vegna mikillar styrkingar á krónunni og lækkunar á afurðaverði og núna er sú staða að koma upp að erfiðlega getur gengið að manna íslenska skipaflotann ef ekki fer að verða breyting á gengi krónunnar og hækkun á fiskverði.
Það er auk þess áréttað að mikilvægt er að standa vörð um sjávarútveginn og tryggja að forsendur þessarar mikilvægu atvinnugreinar standist, annars er voðinn vís.
Skorað er á stjórnvöld að grípa til aðgerða, meðal annars með því að þrýsta á sjálfstæðan Seðlabankann um að lækka vexti og afnema verðtrygginguna. Að fella gengið líkt og gert var hér áður fyrr er ekki boðlegt enda myndi það hafa stökkbreytingaráhrif á verðtryggðar skuldar heimilanna.
Á þessu sést að hér er við gríðarlegan vanda að etja en það er morgunljóst að ekki er hægt að ógna okkar helstu útflutningsgreinum með linnulausri styrkingu krónunnar því á endanum mun það koma illa í bakið á okkur almenningi og þá sögu þekkjum við vel,
segir að lokum á vefsíðu VFLA.