Halldór Jónsson, verkfræðingur og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi til áratuga, hefur sagt skilið við flokkinn. Hann segist ekki sjá að flokkurinn þarfnist sín lengur.
Halldór er ósáttur við framgöngu Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra sem hefur gert samkomulag um undirbúning svonefndrar borgarlínu, sem á að vera hágæða almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu.
Hann er raunar ekki aðeins ósáttur við Ármann, heldur fá aðrir bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins einnig kaldar kveðjur frá honum, en þeir tóku allir þátt í samkomulaginu um borgarlínuna. Það eru þau Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ.
„Miklir hljóta hæfileikar Dags B. Eggertssonar á stjórnmálasviðinu að vera þegar Sjálfstæðismenn í sveitarstjórnum láta hann hafa slíka forystu fyrir sér í Borgarlínu-, léttlestakerfinu og flugvallarmálinu í stríðinu við nútímann og einkabílinn,“ segir Halldór.
Og hann spyr:
„Eru þeir bæjarstjórar allir núna sameinaðir í að tryggja Degi B. og hans fólki áframhaldandi völd í Reykjavík?
Hafa þau Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í Kópavogi, Ásgerður Halldórsdóttir á Seltjarnarnesi og Gunnar Einarsson í Garðabæ tekið sæti í endurkjörsnefnd Dags B. Eggertssonar og vinstri meirihlutans í Reykjavík?
Sjálfstæðisflokkurinn þarf greinilega ekki á mínu atkvæði að halda að vori þar sem upprunnir virðast nýir tímar. Ég á ekki samleið með Degi B. Eggertssyni og hans stefnumálum.
Lifi þetta góða Sjálfstæðisfólk marga góða Daga og takk fyrir mig.“