Ársreikningur Bolungavíkurkaupstaðar fyrir 2016 hefur verið afgreiddur. Afkoma síðasta árs var með besta móti og segir í fréttatilkynningu að fjárhagsleg staða bæjarins hafi ekki verið sterkari um áratuga skeið. Bætt fjárhagsleg staða bæjarins gefi því svigrúm til frekari framkvæmda til þess að styrkja innviði. Jón Páll Hreinsson, bæjarstjóri var spurður að því hvers vegna fjárhagsstaða sveitarfélag væri að batna svo mikið um þessar mundir. Sagðist hann telja að ástæðan væri almennt séð að tekjur sveitarfélaga hafi aukist talsvert á sama tíma og aðhaldsaðgerðir síðustu ára hjá flestum sveitarfélögum séu að skila sér í minni útgjaldavexti. Amk minni í hlutfalli við vöxt tekna.
Skuldir sveitarfélagsins og stofnana þess lækkuðu um 14 milljónir króna og voru í árslok 1609 milljónir króna. Nam skuldahlutfallið 150% af heildartekjum. Það lækkar í 119% þegar tekið hefur verið tillit til leiguskuldbindinga ríkissjóðs vegna hjúkrunarheimilisins. Rekstrarafkoma fyrir afskriftir og vextir var 143 milljónir króna.
Tekjur bæjarsjóðs á árinu 2016 námu 892 milljónum króna og voru þær 48 milljónum króna umfram áætlun. Tekjur hafnarsjóðs voru 102 milljónir króna og vatnsveitunnar 30 milljónir króna. Félagsheimili Bolungavíkur fékk 30 milljóna króna framlag frá bæjarsjóði og Vatnsveitan rúmar 4 milljónir króna. Laun og tengd gjöld voru langstærsti útgjaldaliðurinn og var þessi liður 499 milljónir króna. Stöðugildin voru 68. Kostnaður við bæjarstjóra og bæjarstjórn var 21,5 milljónir króna.