fbpx
Fimmtudagur 28.ágúst 2025
Eyjan

Kafbátaleitaræfing NATO hafin undan ströndum Íslands

Ari Brynjólfsson
Mánudaginn 26. júní 2017 14:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mynd/EPA

Eftir Björn Bjarnason:

Æfing NATO til eftirlits með kafbátum, Dynamic Mongoose 2017, hófst undan ströndum Íslands mánudaginn 26. júní með þátttöku skipa, kafbáta, flugvéla og mannafla frá 10 NATO-löndum, segir í fréttatilkynningu MARCOM, flotastjórnar NATO sem gefin var út í Reykjavík að morgni mánudags 26. júní.

Kafbátar frá Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og Bandaríkjunum undir aðgerðastjórn NATO Submarine Command (COMSUBNATO), kafbátastjórn NATO, taka þátt í æfingunni með 11 skipum frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Íslandi, Kanada og Póllandi og NATO rannsóknaskipinu, NRV Alliance, undir stjórn Ole Mortens Sandquists yfirskipherra (SNMG1). Við æfinguna er stuðst við aðstöðu í Reykjavíkurhöfn og á Keflavíkurflugvelli.

Mynd/EPA

Átta flugvélar sem stunda eftirlit á hafinu frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Íslandi, Kanada og Þýskalandi taka þátt í æfingunni frá Keflavíkurflugvelli undir stjórn NATO Maritime Air Command (COMMARAIR), flugflotastjórnar NATO, sem hefur tímabundið aðsetur á vellinum.

Tilgangur æfingarinnar er að gefa öllum þátttakendum tækifæri til að takast á við flókin og erfið verkefni í því skyni að efla samhæfingu milli þeirra og hæfni til að takast á við verkefni vegna ferða skipa nn- og ofansjávar.

Arnór Sigurjónsson, skrifstofustjóri öryggis- og varnarmála í utanríkisráðuneytinu, segir í fréttatilkynningu MARCOM:

Æfing á vegum NATO á hafinu fyrir sunnan Ísland er til marks um aukna athygli á Norður-Atlantshafi og hún mun auka þekkingu og reynslu innan bandalagsins varðandi svæðið.

Ítalski flotinn annast á þessu ári úthald Alliance, rannsóknaskips NATO, en það starfar í þágu Centre for Maritime Research and Experimentation (CMRE), hafrannsókna- og tilraunastofnunar NATO, sem er í La Spezia á Ítalíu.

Kevin LePage er yfirmaður á vegum CMRE í æfingunni að þessu sinni og segir að þátttaka vísinda- og rannsóknamanna í henni sýni áhuga NATO á að þróa nýja tækni við kafbátaleit sem reist er á fjarstýrðum búnaði.

Á vegum CMRE verður gerð tilraun með mannlaus neðansjávartæki til kafbátaleitar (OEX Explorer AUVs) og mannlaus ofansjávartæki (Wave-Glider USV).

Birtist upphaflega á vefsíðu Varðbergs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Réttindi og skyldur

Björn Jón skrifar: Réttindi og skyldur
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef

Sigmundur Ernir skrifar: Valdaflokkarnir gáfu landsbyggðinni langt nef