Vegna hafíss og lélegs skyggnis hefur leit verið hætt í bili að þeim fjórum sem saknað er frá þorpinu Nuugaatsiaq. Talin er veruleg hætta á frekari risaberghlaupum úr fjallshlíðum sem ganga í sjó fram við Karrat-Ísfjörðinn þar sem berghlaup varð á laugardagskvöld. Grannt er fylgst með fjallshlíðunum og fólk í viðbragðsstöðu því berghlaupin gætu hæglega valdið nýjum flóðbylgjum.
Íbúar þorpanna Nuugaatsiaq, Illorsuit og Niaqornat hafa enn ekki fengið að snúa heim eftir þau voru flutt á brott eftir flóðin.
Áhöfn varðskipsins Ejnar Mikkelsen flutti 49 íbúa frá þessum þorpum í öryggi í Aasiat en þangað var margra klukkustunda sigling frá afskekktum veiðimannaþorpunum við Uummannaq-fjörð.
Fólkið var þreytt og hafði orðið fyrir miklum áhrifum af því sem gerðist. Við sáum til þess að það gæti komið niður undir þiljur og lagt sig, fengið eitthvað að borða, frið og ró. Við gerðum okkar til að þau skorti sem minnst hér um borð. Nokkur sátu og grétu, önnur stóðu á þilfari skipsins og horfðu döpur til lands þegar við sigldum út Uummannaq-fjörð. Fólk hélt utan um hvort annað,
segir Jörgen Bruun skipherra á Ejnar Mikkelsen í samtali við grænlenska útvarpið KNR.
Maður fyllist auðmýkt við að sjá fólk sem hefur misst lífsgrundvöll sinn og viðurværi. Þau hafa tapað eigum sínum, húsnæði og standa um borð í skipi með bakpoka eða plastpoka með því sem þau halda eftir. Þau eru sett á land án þess þau viti hvað framtíðin ber í skauti sér og hvað bíði þeirra,
segir Bruun skipherra.
Fólkinu var tekið opnum örmum þegar það kom til Aasiaat og því fundið húsnæði. Margir hafa lýst vilja til að hjálpa.
Söfnun hafin á Íslandi
Kalak – vinafélag GrænSöfnun hafin til aðstoðar Grænlendingumlands á Íslandi, Taflfélagið Hrókurinn, Hjálparstarf kirkjunnar og aðrir Grænlandvinir hafa nú sett af stað fjársöfnun til hjálpar þeim sem urðu fyrir flóðbylgjunum um síðustu helgi. Fjármunir renna óskiptir til uppbyggingar og þeirra sem um sárt eiga að binda.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur opnað söfnunarreikniginn 0334-26-056200, kennitala 450670-0499. Einnig er hægt að hringja í númer 907-2003 og þannig leggja 2.500 krónur í söfnunina.