Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Iceprotein ehf. og Protis ehf.
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Iceprotein ehf. og Protis ehf. í Verinu á Sauðárkróki, hlaut hvatningarverðlaun FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri í byrjun þessa árs. Á síðasta ári hlaut Hólmfríður hvatningarverðlaun SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Markmiðið Versins Vísindagarða er að annast rekstur kennslu- og rannsóknaraðstöðu ásamt því að skapa aðstöðu og vettvang til samstarfs milli vísindamanna og fyrirtækja á sviði nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi. Í Verinu koma saman frumkvöðlar og fræðimenn sem leitast við að rannsaka og finna ný tækifæri og koma þeim á framfæri, samfélaginu til hagsældar.
Hólmfríður lauk meistaranámi frá Justus-Liebig Universität í Giessen í Þýskalandi og doktorsprófi í lífvísindum og næringarfræði frá Háskóla íslands 2009. Hún er fædd og uppalin í Skagafirði og sneri þangað aftur að námi loknu þar sem hún stýrir nú tveimur frumkvöðla fyrirtækjum; rannsóknarfyrirtækinu Iceprotein og Protis íslensku líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski. Þannig nýtir hún þekkingu sína, reynslu og kraft í að efla orku og lífsþrótt landsmanna. Hólmfríður er sannfærð um að Íslendingar eigi í auknum mæli eftir að nýta hreina og óspillta náttúru landsins til að framleiða matvæli. Íslendingar sitji á miklum verðmætum, og eigi að framleiða miklu meira.
Sett var á markað vörulíina Iceprotein og Protis sem er byggð á áralöngum rannsóknum á heilsubætandi áhrifum fiskprótína. Amínó setti þrjár gerðir fæðubótarefna á markað, Amínó Liði, Amínó Létt og Amínó 100% hreint fiskprótín. Fæðubótarefnin hafa fengið ákaflega jákvæðar undirtektir.
Haft hefur verið samband við framleiðanda varðandi Amínó Liði og bent á að þeir sem hafi notað þá hafi minni þrota og minni verki í liðum. Amínó Liðir innihalda efni sem bæta heilbrigði liða. Vitneskja um mikilvægi á neyslu prótíns hefur aukist mikið og ánægja með neyslu fiskprótínis, þá sérstaklega vegna þess að það er virðist auka úthald yfir daginn. Dr. Hólmfríður segist sannfærð um að fiskprótín sé prótín framtíðarinnar, hreinleiki og uppruni fæðunnar öðlast stöðugt meiri skilning og fylgni, enda er þorskurinn sem prótínið er unnið úr 100% náttúrulegur.