„Framtíð innanlandsflugs er ekki í Vatnsmýri. Að ætla annað er sóun á dýrmætum tíma og peningum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, á Twitter-síðu sinni.
Tilefnið er sú ákvörðun Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra að byggja nýja flugstöð á Reykjavíkurflugvelli og að skipa nefnd um framtíð innanlandsflugs og mögulega flugvallarkosti í því sambandi.
„Ég hef alltaf sagt að ég sjái ekki annað en að langt sé í að annar flugvöllur verði byggður. Þ.e.a.s. ef það er á annað borð ætlunin að byggja annan flugvöll annars staðar en í Vatnsmýri. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt.
Ég lét vinna skýrslu um öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar, sem kemur út fljótlega. Í mínum huga er miðstöð innanlandsflugs í Vatnsmýri,“ sagði samgönguráðherra í samtali við Morgunblaðið í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fv. forsætisráðherra, furðar sig á enn einni nefndinni. Hann bendir á að áform nú um nýja flugstöð komi átján árum eftir að annar samgönguráðherra hafi sagt að framkvæmdir gætu hafist árið 2001.
„En í stað framkvæmda var ráðist í endalausar úttektir á því hvort Reykjavíkurflugvöllur ætti að vera í Reykjavík. Samhliða því að áforma byggingu nýrrar flugstöðvar á næsta ári boðar samgönguráðherra nú enn eina nefnd til að viðhalda óvissu um framtíð flugvallarins. Sú nefnd verður skipuð fjórum árum eftir að menn létu hafa sig í að skipa nefnd til að „enda allar nefndir“,“ bætir Sigmundur Davíð við.
Hanna Katrín Friðriksson, þingkona Viðreisnar, tekur undir með Þorgerði Katrínu.
Hún segir á fésbók í dag:
„Ég er þeirrar skoðunar að framtíðarstaðsetning innanlandsflugsins sé utan miðborgar Reykjavíkur. Ennfremur, að hagsmunir okkar stærstu atvinnugreinar, ferðaþjónustunnar, séu best tryggðir með því að hafa öflugt innanlandsflug beint frá alþjóðaflugvelli.“