„Í umræðunni um vopnaburð lögreglu er auðvelt að tala um tilfinningar. Sumum finnst vopnuð lögregla vekja hjá þeim öryggiskennd. Og það er í sjálfu sér skiljanlegt. Sjálfur fell ég hins vegar í hinn flokkinn. Ég hef líklega sjaldan upplifað mig óöruggari en í kringum tyrknesku lögregluna og mér fannst mjög óþægilegt að sjá vígbúnaðinn sums staðar á götum Rómar þegar ég var þar í fyrrasumar.“
Þetta segir Gísli Garðars, varaþingmaður Vinstri grænna, en hann tjáði sig um „stóra vopnamálið“ á Facebook í dag. Þar segir hann meðal annars að málið geti vakið upp ýmsar tilfinningar hjá fólki, en þær endurspegli ekki endilega raunveruleikann.
„Í dag langar mig ekki að tala um tilfinningar. Mig langar að tala um staðreyndir. Og þetta eru staðreyndirnar:
Á Íslandi hefur lögreglan skotið einn mann til bana. Ever. Enginn hefur látið lífið í hryðjuverkaárás. Nokkurn tímann.
Frá 2000 til 2015 dóu 90 manns í Bretlandi af völdum hryðjuverkaárása. Það eru um 6 manns á ári. Það er aðeins einum fleiri en dóu af völdum bresku lögreglunnar í fyrra.
Meðalfjöldi látinna á ári í hryðjuverkaárásum í Frakklandi frá 2010 til 2014 var 2 á ári. Árið 2012 dóu 4 af völdum lögreglu þarlendis.
Og í fyrra dóu 1092 Bandaríkjamenn í skotárásum lögreglu. Meðalfjöldi látinna í hryðjuverkaárásum erlendra aðila í sama landi frá 1975 til 2015 á ári var 74. Og það er með 11. september 2001. Síðan þá hafa hryðjuverkamenn, erlendir og innlendir, drepið um 6 manns á ári. 0.5% af fjölda þeirra sem dóu af völdum vopnaðrar lögreglu.“
„Nú er ég ef til vill bara einfeldningur,“ segir Gísli, „en ég held að ótrúlegur árangur okkar í að lögreglan drepi ekki fólk gæti mögulega ráðist af því að lögreglan gengur allajafna ekki um með morðvopn. Og ég er ekki til í að fórna þeim árangri til að koma í veg fyrir eitthvað sem hefur aldrei komið fyrir hérlendis og reynsla annarra landa sýnir að er síst meiri ógn en vopnuð löggæsla. Mér finnst að við eigum að byggja samfélagið okkar á staðreyndum, ekki tilfinningum.“
Ekki síst af því að mér finnst ekkert skárra að lögreglumaður skjóti mig til bana en hryðjuverkamaður.